Spegillinn

Spegillinn 23.09.2019


Listen Later

Umsjón: Pálmi Jónasson
Átta af níu lögreglustjórum á landinu bera ekki traust til Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra. Þetta segir formaður Lögreglustjórafélags Íslands.
Deilur Írana og Bandaríkjamanna eru orðnar svo harðar að full ástæða er til að hafa áhyggjur af, segir Magnús Bernharð Þorkelsson prófessor í sögu Mið-Austurlanda.
Eftir 178 ára viðskiptasögu er breska ferðaskrifstofan Thomas Cook farin í þrot. Enn eitt dæmið um fyrirtæki sem náði ekki tökum á breyttu viðskiptaumhverfi.
Formaður velferðarráðs Reykjavíkur segir eðlilegt að önnur sveitarfélög taki þátt í kostnaði vegna þjónustu við heimilislaust fólk. Tæplega einn af hverjum fimm sem nýta sér gistiskýli borgarinnar er með lögheimili utan Reykjavíkur.
Tuttugu féllu og tugir særðust í óeirðum í Papúa héraði í Indónesíu í dag. Nokkur hundruð voru tekin höndum.
Lengri umfjallanir:
Níu þúsund manns í Bretlandi missa vinnuna, í viðbót við ellefu þúsund starfsmenn erlendis nú þegar ferðaskrifstofan Thomas Cook er gjaldþrota. Stærsta aðgerð á friðartímum til að fljúga farþegum aftur til Bretlands er í gangi, alls 150 þúsund manns sem þarf að flytja heim til Bretlands, með tilheyrandi kostnaði hins opinbera. En gjaldþrotið vekur líka spurningar um eftirlit ríkins með flugfélögum og ferðaskrifstofum. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi og formaður velferðarráðs Reykjavíkur segir eðlilegt að önnur sveitarfélög taki þátt í kostnaði vegna þjónustu við heimilislaust fólk. Tæplega einn af hverjum fimm sem nýta sér gistiskýli borgarinnar er með lögheimili utan Reykjavíkur. Heiða spyr hvort það sé sanngjarnt að kostnaðurinn lendi alfarið á útsvarsgreiðendum í Reykjavík. Höskuldur Kári Schram tók saman.
Grátrönur hafa verið að flækjast hingað til lands og það hefur sést til hennar víðsvegar um landið. En hvað rekur Grátrönur til Íslands? Skarphéðinn G. Þórisson, hreindýrasérfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands segir að það flækist oft hingað fuglar oft vegna sterkra vinda sem þeir lenda í. Trönurnar komi kannski af öðrum ástæðum. Arnar Páll Hauksson tók saman.
Í Noregi hafa tveir dómar vakið athygli fyrir að skera úr um grundvallaratriði í refsilöggjöfunni. Er það pólitísk tjáning að senda fólki sorp í pósti - og ræður andlitsfall á kynlífsdúkkum úrslitum um hvort þær séu löglegar eða ekki? Gísli Kristjánsson tók saman.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

88 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

8 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

76 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

9 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners