Ein fremsta fimleikakona landsins, greindi frá því í dag að erlendur fimleikamaður hefði nauðgað henni á keppnisferðalagi árið 2016. Hún vonar að aðrir þolendur öðlist kjark til þess að stíga fram.
Það spáir vonskuveðri á norðanverðu landinu þegar líður á kvöldið, norðaustanátt, stormi og snjókomu. Nokkrum fjallvegum á Norðurlandi hefur þegar verið lokað.
Sandgerðisbær er að setja upp gámaíbúðir fyrir einstaklinga og litlar fjölskyldur til að mæta brýnni húsnæðisþörf á svæðinu.
Skatturinn er enn og aftur á hælunum á knattspyrnugoðinu Lionel Messi. Þetta sýna ný gögn sem birt eru í Der Spiegel. Kappinn fær milljarð á mánuði samkvæmt nýjum samningi við Barcelona.
Framkvæmdastjóri Samiðnar telur að launamunur á milli erlendra og innlendra starfsmanna sé að festa sig í sessi. Erlendum ríkisborgurum fjölgar,
mikið þeir eru nú hátt í 40 þúsund.
Kvikmyndin The Shape of Water fær flestar tilnefningar til Óskarsverðlaunanna í ár. Myndin er tilnefnd til 13 verðlauna
Pálmi Jónasson fjallar um ný lekagögn úr Der Spiegel um knattspyrnugoðið Lionel Messi
Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um útlendinga á vinnumarkaði sem hafa aldrei verið fleiri
Arnar Páll Hauksson ræðir við Sigmund Davíð Gunnlaugsson um nýtt staðarval fyrir spítala.