Enn liggur ekki fyrir hvenær og hvort atkvæði verða greidd um frumvarp um lækkun kosningaaldurs í 16 ár sem rætt hefur verið á Alþingi meira og minna í allan dag.
Forseti Frakklands lýsti því yfir í dag að ríki Evrópusambandsins myndu svara mögulegu viðskiptastríði við Bandaríkin kröftuglega.
Rúmlega þrítugur karlmaður var í dag dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku. Í tölvu hans fannst skjal með ýmsum nöfnum og fæðingarárum.
Ljóst er að þrír féllu og 16 særðust, þar af tveir alvarlega, í árás byssumanns á þrjá staði í nágrenni borgarinnar Carcassonne í Suður-Frakklandi í morgun.
Formaður félags framhaldsskólakennara segir að staðan í kjaraviðræðum framhaldsskólakennara sé alvarleg. Hún vonar að ekki þurfi að koma til verkfalls.
Það hefur verið óvenju líflegt í íslenskri kvikmyndagerð undanfarna mánuði. Átta leiknar íslenskar kvikmyndir hafa verið frumsýndar frá því í september á síðasta ári, fyrir utan stuttmyndir og nokkrar heimildamyndir. Þau Gunnar Theodór Eggertsson og Nína Richter fylgjast vel með íslenskum og erlendum kvikmyndum. Kristján Sigurjónsson ræddi við þau.
Í gær kynnti meirihlutinn í borginni tillögur um að fjölga leikskólaplássum um 750 til 800 á næstu sex árum með það að markmiði að öll börn á aldrinum 12-18 mánaða komist inn í leikskóla. Haraldur F. Gíslason, formaður félags leikskólakennara hefur áhyggjur af því að erfitt verði að manna stöður leikskólakennara. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við hann.
Norskir andstæðingar tilskipunar Evrópusambandsins í orkumálum sem gengur undir nafninu þriðji orkupakkinn horfa til afstöðu Íslands sem gæti ráðið miklu. Norska Stórþingið í Noregi samþykkti innleiðingu tilskipunarinnar í gær en mjög skiptar skoðanir eru um málið. Arnar Páll Hauksson.