Spegillinn

Spegillinn 24. Febrúar


Listen Later

Spegillinn 24.febrúar 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Dregið hefur úr skjálftavirkninni á Reykjanesskaga eftir því sem liðið hefur á daginn en hún er samt enn mikil. Hættustigi hefur verið lýst yfir á höfuðborgarsvæðinu. Skíðasvæðinu í Bláfjöllum hefur verið lokað.
Dagur B. Eggertsson formaður Almannavarnaráðs höfuðborgarsvæðisins minnist þess ekki að höfuðborgarsvæðið hafi áður verið sett á hættustig vegna jarðskjálfta. Búa verði sig undir að skjálftar geti orðið harðari og nær höfuðborgarsvæðinu.
Af öryggisástæðum voru flestir starfsmenn HS orku sendir heim eftir stóru skjálftana í dag
Um þriðjungur landsmanna er með innbú sitt ótryggt, er ekki brunatryggður, sem þýðir sömuleiðis að innbúið er ekki tryggt gegn tjóni vegna náttúruhamfara, til dæmis af völdum jarðskjálfta. Hulda Ragnheiður Árnadóttir er framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratrygginga Íslands.
Alls eru sjö í gæsluvarðhaldi vegna morðsins í Rauðagerði. Rannsókn málsins er mjög umfangsmikil og samkvæmt heimildum fréttastofu snýr hún meðal annars að mögulegu peningaþvætti og fjársvikum. Fjöldi vitna hefur verið kallaður til skýrslutöku og tólf hafa réttarstöðu sakbornings.
Heilbrigðisráðherra segir innviði til greiningar leghálssýna ekki vera til staðar hér á landi, Hún vill fullvissa konur sem beðið hafa mánuðum saman eftir niðurstöðu úr leghálsskimun um að þjónustan verði betri í nýju kerfi.
Lengri umfjöllun:
Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands kemur í beina útsendingu í Speglinum og segir frá Jarðskjáftahrinunni á Reykjanesskaga í dag, jarðskjálftasögunni, útskýrir eðli jarðskjálfta, fer yfir styrkleika þeirra og við hverju megi búast í náinni framtíð á Reykjanesskaga. Kristján Sigurjónsson talar við Freystein.
Álag vegna COVID-19 meðal opinbera starfsmann virðist hafa aukist meira en meðal starfsfólks á almenna vinnumarkaðinum. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir BSRB. Þá kemur fram að gæðastundum með fjölskyldunni hefur fjölgað miðað við sambærilega könnun sem gerð var í apríl. Arnar Páll Hauksson talaði við Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB.
Bólusetning gegn Covid-19 gengur vel í Bretlandi en ójöfn dreifing um landið ógnar áhrifum hennar. Það er búið að bólusetja tæplega þriðjung Breta einu sinni og í augsýn að byrja að létta á núverandi hömlum. En nú blasa við önnur vandamál: hvernig megi hindra að veiran blossi upp aftur með tilheyrandi lokunum og svo hvernig eigi að tryggja að nógu margir láti bólusetja sig. Sigrún Davíðsdóttir segir fr
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners