Spegillinn

Spegillinn 24. Mars


Listen Later

Spegillinn 24.mars 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Stórhertar sóttvarnaaðgerðir ganga í gildi á miðnætti, þær hörðustu frá því faraldurinn hófst. Ekki mega fleiri en tíu koma saman, öllum skólum nema leikskólum verður gert að loka. Hið sama á við leikhús, kvikmyndahús, sundstaði og líkamsræktarstöðvar.
Starfsemi Landspítalans verður færð á hættustig á miðnætti í ljósi fjölgunar COVID-smita
Fjármálaráðherra gerir sér vonir um að ræst geti úr ferðaárinu, samkomutakmarkanir sem taki gildi á miðnætti séu liður í því. Forsætisráðherra hefur skilning á að aðgerðirnar veki reiði hjá fólki.
Virkni hefur aukist utan megingígsins í Geldingadölum. Ófremdarástand skapaðist á Suðurstrandarvegi í dag að sögn björgunarsveitarmanna vegna fjölda fólks og bíla á svæðinu.
Stjórnarandstaðan er ósátt við að komið hafi til herta sóttvarna, því stjórnvöld hefðu þurft að grípa fyrr inn í.
Tveir voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í tíu vikna farbann, eða til miðvikudagsins 2. júní. Það er að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í Rauðagerði í síðasta mánuði.
Hertar sóttvarnaaðgerðir taka sérstaklega mið af því að breska afbrigðið smitast meira meðal barna en önnur afbrigði. Smitsjúkdómalæknir barna segir mjög mikilvægt að farið sé með börn í sýnatöku komi fram einkenni COVID-19.
Lengri umfjöllun:
Sóttvarnalæknir segir að það sé ekki verið að skella í lás þó að sóttvarnareglur hafi verið hertar. Hann vonar að hægt verði að slaka á eftir tvær til þrjár vikur. Forsætisráðherra segir að þetta sé ekki skellur, við séum einfaldlega í orustu við veiruna. Fjármálaráðherra segir að á þessari stundu sé ekki ástæða til að hafa áhyggjur að því að aðgerðirnar seinki efnahagsbatanum. Arnar Páll Hauksson ræðir við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni, Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra, Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra og Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra.
Þúsundir manna lögðu leið sína að gösstöðvunum Í Geldingadölum í dag á fimmta degi goss og fylgdist með átökunum og sjónarspilinu þar. Suðurnesjamenn, sveitarstjórnarfólk þar, ferðaþjónustufyrirtæki, björgunarsveitir, lögregla og aðrar opinberar stofnanir eru þegar byrjaðar að undirbúa og gera áætlanir um hvernig taka skuli á móti fyrirhuguðum miklum fjölda ferðamanna vegna eldgossins í Geldingadölum. Ferðaþjónusfólk í Grindavík ætlar ásamt bæjaryfirvöldum í Grindavík og Markaðsstofu Reykjaness að bera saman bækur sínar á sérstökum fjarfundi á morgun
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners