Þúsundir kvenna lögðu niður vinnu í dag og tóku þátt í baráttufundum á Arnarhóli og víða um land. Fyrrverandi forsætisráðherra segir að orðið hafi bakslag í jafnréttisbaráttunni á Íslandi
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur frá því í sumar stöðvað starfsemi þriggja gististaða á höfuðborgarsvæðinu og óskað eftir lögreglurannsókn á nokkrum öðrum.
Tuttugu karlar hafa verið sakfelldir og dæmdir til samtals 220 ára fangelsisvistar í Bretlandi fyrir að hafa árum saman níðst á og nauðgað 15 ungum stúlkum.
35 vindmylla vindorkugarður verður í kvöld kynntur fyrir íbúum í námunda við Gilsfjörð. Að vindorkugarðinum stendur fyrirtækið EM orka sem hefur nú þegar hafið vindmælingar og umhverfismat.
Sænsk rannsókn sýnir að kuldi og þungbúið veðurfar getur aukið líkur á hjartaáfalli.
Gylfi Arnbjörnsson, fráfarandi forseti Alþýðusambands Íslands, telur mikilvægt í kjarabaráttunni að stefna ávallt upp á við. Það eigi frekar að gera með hægum skrefum til að forðast bakslag. 43. þing Aldýðusambands Íslands hófst í dag og stendur í þrjá daga.
Umsjón Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður. Mark Eldred