Spegillinn

Spegillinn 24. september 2018


Listen Later

Fréttir:
Heilbrigðisráðherra leggur til að rammaramningi Sjúkratrygginga við sérfræðilækna verði framlengt um ár. Hann átti að renna út um áramót. Hún boðar samráð við Sjúkratryggingar og sérfræðilækna um kerfisbreytingar. Bættist við þetta glænýja helst í lok fréttatíma
Bandarískir fjölmiðlar greindu frá því í dag að allt benti til þess að aðstoðardómsmálaráðherra Bandaríkjanna, Rob Rosenstein, yrði rekinn í dag, eða ætlaði að segja af sér.
Valur Lýðsson, bóndi að bænum Gýgjarhóli tvö, hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að bana Ragnari bróður sínum um páskahelgina. Dómari komst að þeirri niðurstöðu að það hafi ekki verið ásetningur Vals að bana bróður sínum.
Vegagerðin hyggst taka hluta Hjalteyrarvegar út af vegaskrá. Sveitarstjórn Hörgársveitar mótmælir harðlega. Vegurinn að höfninni gegni lykilhlutverki í ferðaþjónustu á svæðinu.
Forseti Argentínu segir að ríkissjóður landsins eigi von á fjármunum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Greiðsluþrot sé því ekki yfirvofandi, eins og margir hafa haldið fram.
Lengri umfjöllun:
Það er skollið á viðskiptastríð á milli stærstu efnahagsvelda heims, Bandaríkjanna og Kína. Í nótt settu bandarísk stjórnvöld refsitolla á mörg þúsund kínverskar vörur, og Kínverjar svöruðu samstundis í sömu mynt. Bandaríkin ætla sér að vinna þetta stríð, sagði utanríkisráðherrann í gærkvöld. Ragnhildur Thorlacius
Stóra áætlun Theresu May forsætisráðherra Breta á fundi með leiðtogum hinna ESB-landanna var að sneiða hjá embættismönnunum í Brussel. Þetta herbragð mistókst og í vegarnesti fékk hún aðeins höfnun þeirra á grundvallaratriðum í úrgönguáætlun hennar. Brexit-áætlun Breta er enn jafn óljós og áður og þar við bætist pólitísk óvissa. Sigrún Davíðsdóttir.
Norska leyniþjónustan hefur handtekið rúmlega fimmtugan Rússa og sakað hann um njósnir. Hann var úrskurðaður í 2ja vikna gæsluvarðhald. Rússar telja að það eigi að reyna að skipta honum út fyrir norskan eftirlaunaþega sem hefur setið í gæsluvarðhaldi í Moskvu í níu mánuði, sakaður um njósnir. Jóhann Hlíðar Harðarson.
Umsjónarmaður: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners