Spegillinn

Spegillinn 24.febrúar 2022


Listen Later

Spegillinn 24.febrúar 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Flótti er brostinn á hjá íbúum Kænugarðs í úkraínu, en rússneski herinn nálgast borgina. Ingólfur Bjarni Sigfússon er í Kænugarði og segir frá.
Rússar eru með innrás í Úkraínu að reisa sitt eigið járntjald segir forseti landsins og þar með einangra sig frá Evrópu.
Evrópusambandið undirbýr nú efnahagsþvinganir gagnvart Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu, sem beinast meðal annars að bankakerfi landsins. Öryggis- og varnarmálafræðingur telur ólíklegt að þær dragi úr hernaði Rússa.
Íslendingur sem er nýkominn til Dúbaí frá Kænugarði hringir nú í alla vini sína og kunningja í Úkraínu og reynir að koma úkraínskri tengdafjölskyldu sinni frá borginni Karkív. Fjölskyldan vaknaði við sprengingar í morgun.
Um 300 manns eru samstöðufundi með Úkraínsku þjóðinni við Landakotskirkju.
Enn ein óveðurslægðin nálgast nú landið með suðaustan stormi. Það byrjar að hvessa í nótt og appelsínugular veðurviðvaranir taka gildi um hádegisbil, fyrst á höfuðborgarsvæðinu.
Lengri umfjöllun:
Guðni Th. Jóhannesson Forseti Íslands segir að innrás í annað ríki megi aldrei líða, aldrei þola og aldrei viðurkenna. Ef lýðræðisríki heimsins bregðist ekki við með skýrum og sterkum hætti þá verði vandinn einungis verrri síðar meir. Ólöf Rún Skúladóttir ræðir við Guðna.
Albert Jónsson sérfræðingur í varnarmálum og fyrrverandi sendiherra segir ólíklegt að önnur lönd blandist inn í hernaðarátök í Úkraínu. Efnahagsaðgerðir geti verið Rússum erfiðar , en það sé erfitt að einangra þá, þeir eigi eigi vini og viðskiptafélaga víða um heim, í Kína, Indlandi, Mið Asíu, Suður Ameríku og víðar. Kristján Sigurjónsson talar við Albert.
Á Norðurlöndunum hafa stjórnmálamenn lýst yfir samstöðu með Úkraínumönnum og skammað rússneska sendiherra, jafnvel heitið mannúðaraðstoð og lofað að taka á móti flóttafólki; aukið viðbúnað hers og lögreglu. Óskum úkraínskra sendimanna um að fá að kaupa vopn, hefur hins vegar verið mætt af nokkuð meiri tregðu. Kári Gylfason í Gautaborg talar við Önnu Kristínu Jónsdóttur.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

21 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

19 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

32 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

42 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

30 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners