Spegillinn 24.janúar 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Bandarísk stjórnvöld bræða með sér að senda allt að fimm þúsund manna herlið til Evrópu til að styrkja varnir Austur-Evrópuríkja sem eiga aðild að Atlantshafsbandalaginu láti Rússar verða af því að ráðast á Úkraínu.
Formaður SÁÁ hefur sagt af sér. Hann svaraði vændisauglýsingu á netinu fyrir nokkrum árum, og segir að sú hegðun sé ófyrirgefanleg.
Ástandið á gjörgæslu Landspítalans er betra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Áfram verður þó áskorun að halda starfsemi spítalans gangandi á meðan smit eru eins mörg og raun ber vitni að mati yfirlæknis gjörgæslulækninga á Landspítalans.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ætlar ekki að leggja til að slakað verði á sóttvarnaaðgerðum fyrr en fyrsta lagi eftir mánaðamót. Hann vill heldur aflétta í hægum skrefum og vinnur nú að afléttingaáætlun út febrúar ásamt heilbrigðisráðherra.
Ísland tapaði gegn Króötum í sveiflukenndum leik í Búdapest í dag. Þrátt fyrir tapið er sæti í undanúrslitum enn innan seilingar.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag ríkið af kröfu fyrrverandi lögreglumanns um 140 milljóna króna bætur vegna þess að hann fékk ekki skipun sína í embætti framlengda.
Bæjarstjórn Akureyrar hefur ákveðið að veita fyrirtækinu atNorth ehf. vilyrði fyrir lóð undir gagnaver í bænum. Þá eru hugmyndir uppi um að nýta varman frá verinu í gróðurhús.
Lengri umfjöllun:
Svo virðist sem bjartsýnustu spár um þróun faraldursins hér á landi séu að koma fram. Færri hafa lagst inn á gjörgæsludeild en áætlanir gerðu ráð fyrir og þrátt fyrir smit í hundraðavís allt frá því í desember hefur heilbrigðiskerfið staðist áhlaupið nokkuð vel. Ríkari krafa hefur verið um afléttingar seinustu daga og svo virðist sem þær séu nú þegar komnar á teikniborð heilbrigðisyfirvalda. Dr. Maria Van Kerkhove, einn helsti sérfræðingur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í vörnum gegn COVID-19 sagði í viðtali í gær að þrátt fyrir að omíkron-afbrigðið sé ekki eins skaðlegt og forverinn, delta, sé veiran hættuleg.Þó svo að omíkron-afbrigðið sé veikara en delta valdi það álagi á heilbrigðiskerfi landa, sem oft og tíðum sé sligað af álagi í heimsfaraldri sem staðið hefur á þriðja ár. Bjarni Rúnarsson talar við Martin Inga Sigurðsson, prófessor við Háskóla Íslands og yfirlækni svæfinga og gjörgæslulækninga á Landspítalanum.
Undanfarnar þrennar kosningar hafa orðið miklar mannabreytingar í sveitarstjórnum og útlit er fyrir að svo verði enn í vor þegar kosið verður um miðjan maí; að sex af hverjum tíu sveitarst