VR og Efling stefna að sex staðbundnum verkföllum á næstunni sem gætu staðið fram yfir miðjan apríl en þá tæki við ótímabundið verkfall. Hvert verkfall stæði yfir í tvo til fjóra daga. Samanlagt er um að ræða 18 verkfallsdaga.
Spáð er ofsaveðri á austurhelmingi landsins í nótt og á morgun. Varað er við aurskriðum og það verður ekkert ferðaveður á þessum slóðum.
Evrópusambandið vísar því algerlega á bug að beita hervaldi til þess að koma forseta Venesúela frá völdum eins og leiðtogi stjórnarandstöðunnar hefur biðlað til þeirra um. Bandaríkin virðast nokkuð einangruð í þeirri afstöðu að hernaðaríhlutun komi til greina.
Almenna leigufélagið ætlar að draga til baka fyrirhugaðar hækkanir á leigu sem áttu að koma til framkvæmda á næstu þremur mánuðum.
Bann við því að auglýsa ruslfæði nærri almenningssamgöngum í Lundúnum tók gildi í dag.
Staðaní kjaramálum. Arnar Páll Hauksson talar við Ragnar Ingólfsson, formann VR.
Hvað borðaði afi þegar hann var lítill? Var hann oft svangur eða gat hann étið á sig gat? Það er aldrei að vita nema forvitin barnabörn spyrji afa einhvern tímann að þessu. Vitneskja um lífshætti eldri kynslóða auðgar líf þeirra yngri en færri átta sig á því að það hvað afi borðaði gæti haft neikvæð áhrif á líf og heilsu barnabarnanna, nánar tekið afastrákanna hans. Þetta sýna tvær sænskar rannsóknir, sú fyrri var birt árið 2002 og vakti mikla athygli. Arnahildur Hálfdánardóttir.