Spegillinn

Spegillinn 25. janúar 2019


Listen Later

Umboðsmaður Alþingis telur að svar Seðlabanka Íslands til Þorsteins Más Baldvinssonar, þegar hann óskaði eftir því að stjórnvaldssekt bankans yrði afturkölluð, hafi ekki verið í samræmi við lög. Þorsteinn Már segir álitið gríðarlegan áfellisdóm yfir starfsfólki seðlabankans.
Fjármálaráðherra styður ekki tillögur Alþýðusambandsins um að tekin verði upp hátekjuskattur. Hann óttast að fjögurra þrepa skattkerfi leiði til hærri skatta á meðaltekjur.
Aldraðir sem fá aðeins brot af ellífeyrisgreiðslum fá sérstakan viðbútarstuðning samkvæmt frumvarpi sem félagsmálaráðherra ætlar að leggja fram á Alþingi.
Innan nokkurra ára má vænta mikilla breytinga í meðferð Parkinson-sjúklinga. Hægt verður að taka frumur úr sjúklingunum, endurforrita þær sem stofnfrumur og græða þær í heila þeirra. Þetta er mat heilaskurðlæknis sem náði að draga mjög úr parkinson-einkennum apa sem hann meðhöndlaði með þessari aðferð.
Mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar sími 9 ára stúlku sprakk þegar hann var í hleðslu í nótt.
Alþýðusambandið telur nauðsynlegt að óhagnaðardrifin húsnæðisfélög byggi 6000 íbúðir á næstu tíu árum sem kosti 60 til 70 milljarða króna. Jafnframt verði reistar 1800 leiguíbúðir í almenna húsnæðiskerfinu. Arnar Páll talar við Ragnar Þór Ingólfsson.
Eftir fjögur til fimm ár ætti að vera hægt að græða stofnfrumur í heila Parkinson-sjúklinga og minnka einkenni þeirra verulega. Þetta er mat Arnars Ástráðssonar, heila- og taugaskurðlæknis, sem starfar bæði við háskólann í Árósum og Harvard-háskóla í Boston. Fyrir þremur árum græddi hann stofnfrumur í heila macaca-apa með góðum árangri, Parkinson-einkenni apans hurfu nánast. Spegillinn hitti Arnar á Læknadögum og spurði hvort í náinni framtíð verði hægt að lækna Parkinson-sjúkdóminn
Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, var drepinn í Kongó árið 1961. Í nýrri heimildarmynd, sem frumsýnd verður á Sundance á morgun, segir að flugmaður hafi viðurkennt morðið. Dauðasveit frá Suður-Afríku ruddi úr vegi þeim sem börðust fyrir sjálfstæði Afríkuríkja og vildi tryggja áframhaldandi yfirráð hvíta kynstofnsins yfir auðlindum Afríku. Pálmi Jónasson segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners