Nái friðlýsingartillögur Náttúruverndarstofnun Íslands fram að ganga eru fyrirhugaðar framkvæmdir við Hvalárvirkjun í uppnámi. Landvernd fagnar tillögunni og hvetur Umhverfisráðherra til að friðlýsa svæðið.
Ráðherrar EFTA ríkjanna undirrituðu í dag fríverslunarsamninga við Ekvador og Tyrki. Utanríkisráðherra segir mikilvægt að nýta alþjóðaviðskipti til þess að stuðla að framförum í ríkjum þar sem mannréttindi eru fótum troðin.
Nýtt úrræði fyrir börn sem glíma við fíknivanda verður vonandi tekið í gagið með haustinu, segir félagsmálaráðherra. Í apríl boðaði hann það yrði innan tveggja vikna, en erfiðlega gekk að fá fjármagn.
Karolinska sjúkrahúsið í Svíþjóð hefur dregið til baka sex greinar um plastbarkaígræðslur sem birtust í þekktum vísindatímaritum. Paolo Macchiarini er aðal höfundur greinanna og segir í tilkynningu frá sjúkrahúsinu að 7 höfundar séu ábyrgir fyrir vísindalegu misferli.
Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað fyrirtækið Móður jörð fyrir brot á útlendingalögum og lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Ákært var vegna fólks sem vann þar fyrir tveimur árum. Lögfræðingur Alþýðusambands Íslands segir ekki sé lengur leyfilegt að fá sjálfboðaliða til starfa í landbúnaði.
Athugasemdir hafa verið gerðar af hálfu Fjármálaeftirlitsins við aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hjá öllum sparisjóðum landsins.
Hætt hefur verið við fjölda fyrirhugaðra sýninga á söngleiknum Billy Elliot í Ungverjalandi eftir að gagnrýni um að á sýningunni fyrirfinnist samkynhneigður áróður.
Þjóðrækni eða þjóðremba - hvernig birtast þessar systur á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Rússlandi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Guðmund Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði.
Stjórnarþingmenn sem styðja Brexit höfðu ástæðu til að gleðjast í liðinni viku Theresa May forsætisráðherra Breta virtist styðja sjónarmið þeirra. En það er grunnt á trausti Brexit-sinna í garð May. Hún lofar klipptri og skorinni úrgöngu en allar tillögur hennar eru bræðingur þess að vera í og utan ESB. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Mark Eldred