Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða Jóni Höskuldssyni héraðsdómara rúmar 5 milljónir í skaða- og miskabætur vegna þess að gengið var fram hjá honum við skipan dómara í Landsrétt.
Minni von er til þess að ungt fólk sem fer í geðrof vegna kannabisreykinga nái sér aftur, en þeir sem fara í geðrof af öðrum ástæðum. Þeim hefur fjölgað verulega sem koma á geðdeild í geðrofi vegna kannabisreykinga.
Sendiráð Norðurlandanna í Bandaríkjunum hafa síðustu daga svarað fullyrðingum starfsmanna Hvíta Hússins sem segja að tilraunir með sósíalisma hafi skaðað Norðurlönd. Hvíta húsið birti þessar fullyrðingar á heimasíðu sinni í fyrradag.
Öryrkjabandalagið vill taka upp samvinnu og virkt samráð við Alþýðusambandið í komandi kjarabaráttu. Áskorun um þetta var send inn á þing ASÍ í dag.
Umhverfisráðherra hefur ákveðið að fjölga rjúpnaveiðidögum úr 12 í 15.
Heimsfaraldur sambærilegur spænsku veikinni gæti orðið á fjórða þúsund manns að bana á höfuðborgarsvæðinu. Yfirlæknar á Landspítalanum telja spítalann hafa minni burði til að bregðast við heimsfaraldri nú en árið 2009. Þá sprengdi tiltölulega vægur faraldur svínaflensu gjörgæsluna. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og ræðir við Þórólf Guðnason, Magnús Gottfreðsson og Ólaf Guðlaugsson.
Um fátt hefur meira verið fjallað á síðustu vikum en morðið á blaðamanninum Jamal Khasoggi. Það hefur nánast komið af stað milliríkjadeilu á milli Tyrklands og Sádi-Arabíu. Málið snýst þó um miklu meira en örlög eins blaðamanns, hræðileg örlög hans hafa í raun snúist upp í valdabaráttu tveggja manna sem báðir vilja láta líta á sig sem leiðtoga múslima í heiminum. Jóhann Hlíðar harðarson segir frá.
Umsjón Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður Jón Karl Helgason