Spegillinn

Spegillinn 25.febrúar 2021


Listen Later

Spegillinn 25.febrúar 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
2500 skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaga síðan á miðnætti. Fimm voru stærri en þrír. Niðurstöður gasmælinga eru þær sömu og í gær.
Vísindamenn mynduðu gufur á Höskuldarvöllum á Reykjanesskaga í dag. Of snemmt er að segja til um hvort þær hafi myndast í kjölfar skjálftahrinunnar.
Yfirheyrslur yfir þeim sjö sakborningum sem eru í haldi vegna Rauðagerðismálsins standa enn yfir og halda eitthvað áfram.
Mikið álag hefur verið á heilsugæslustöðvar vegna ferðalaga fólks til útlanda. Fleiri hafa óskað eftir vottorðum til að sýna fram á COVID-leysi en búist var við
Skjól, nýtt dagsetur fyrir konur í ótryggri stöðu, var formlega opnað í dag í Reykjavík. Kona sem glímt hefur við heimilisleysi segir þýðingarmikið að geta komist inn yfir daginn og haft eitthvað fyrir stafni.
Skaðabótamáli sem Öryrkjabandalagið höfðaði gegn Reykjavíkurborg vegna leigjenda hjá Brynju, hússjóði Öryrkjabandalagsins, var í gær vísað frá dómi.
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli byrjaði í dag að sekta þá sem koma til landsins án vottorðs um neikvæða niðurstöðu úr skimun.
Saksóknarar í New York, sem rannsaka fjárreiður Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hafa fengið skattskýrslur hans afhentar eftir margra mánaða baráttu fyrir dómstólum.
Lengri umfjöllun:
Árið 2020 einkenndist af glímunni við Covid faraldurinn og glíman stendur enn yfir. Þetta eru fordæmalusir tímar eins og við höfum marg sinnnis fengið að heyra. En hvaða áhrif hefur Covid haft á slálina og hvernig líður okkur? Ýmsir hafa reynt að varpa ljósi á líðan okkar. Í könnun Vörðu, rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins kom t.d. fram að yfir 40% kvenna á vinnumarkaði glíma við slæma andlega heilsu. Þá kemur fram í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir BSRB að álag hefur aukist í kófinu. Virk, Embætti landlæknis og Vinnueftirlit ríkisins efndu til fundar í morgun þar sem kastljósinu var meðal annars beint að líðan starfsfólks á vinnumarkaði og leiðum til að efla velsæld á tímum Covid. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri Lýðheilsusviðs hjá embætti Landlæknis og Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Samkaupum voru meðal þeirra sem fluttu erindi. Þær ræða við Arnar Pál Hauksson.
Bjarni Sæmundsson, rannsóknarskip Hafrannsóknastofnunar, lagði af stað í tveggja vikna rannsóknarleiðangur umhverfis landið þann 15. febrúar og kemur til heimahafnar í Hafnarfirði eftir nokkra daga. Farið er fjórum sinnum á ári í slíka leiðangra og þá er ástand sjávar kannað, meðal ann
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners