Spegillinn

Spegillinn 25.mars 2018


Listen Later

Það er enn ein ábendingin um að taka þurfi til hendinni í heilbrigðismálum, að karlmanni á fertugsaldri með heilaskaða skuli einungis bjóðast vist á hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Þetta segir heilbrigðisráðherra.
Frakklandsforseti kveðst þess fullviss að Bandaríkjamenn eigi eftir að taka þátt að nýju í aðgerðaáætluninni sem samkomulag náðist um á loftslagsráðstefnunni í París. Hann varar Bandaríkin við þjóðernis- og einangrunarhyggju sem einungis eigi eftir að valda þeim skaða.
Stjórnmálafræðingur segir margt benda til þess að kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum í næsta mánuði verði lakari en í kosningunum 2014. Þá var hún í sögulegu lágmarki.
Þingmaður Flokks fólksins segir að framganga yfirvalda í máli strokufangans sem flúði frá Sogni, hafi verið í hæsta máta óeðlileg og meðalhófs hafi klárlega ekki verið gætt.
Borgarflokkur Viðreisnar vill að laun kennara verði hækkuð um 100 þúsund krónur á mánuði.
Snjalltæki og sítenging geta skapað fólki frelsi. Það er ekki eins bundið við vinnustaðinn sjálfan, fólk ræður því betur hvenær gengið er frá verkum en krafan um að vera alltaf til taks getur líka haft neikvæð áhrif á fólk og fjölskyldulíf og valdið streitu. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Guðbjörgu Lindu Rafnsdóttur, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og Helga Dan Stefánsson .
Rúmt hálft ár er nú liðið frá því að einhverjir verstu skógareldar í manna minnum geisuðu í Norður-Kaliforníu. Kristján Sigurjónsson segir frá eftirköstum eldanna.
Skortir heildarstefnu um ferðaþjónustuna. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Umsjón Arnar Páll Hauksson.
Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners