Spegillinn

Spegillinn 25.mars 2021


Listen Later

Spegillinn 25.mars 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Fjöldi sjúklinga á Covid göngudeild landspítalans hefur fjórfaldast síðustu daga, en þar eru nú hátt í níutíu manns. Yfirlæknir á spítalanum segir að fjórða bylgjan sé hafin.
Fjármálaráðherra segir baráttuna við heimsfaraldur vera eins og að klífa mjög hátt fjall. Allt annar veruleiki blasi við á síðari hluta ársins.
Talið er að hraun flæði yfir í Meradali eftir um tvær vikur miðað við núverandi rennsli. Flúor hefur mælst í regnvatnssýnum við gosstöðvarnar.
Yfirkokkur veisluþjónustu, sem gerði ráð fyrir að elda mat fyrir rúmlega 700 fermingarveislugesti nú um helgina, segir mikil vonbrigði að fresta hafi þurft veislunum. Hann segist binda vonir við að alvöru partý verði haldin í haust.
Færð er nú tekin að spillast víða um land.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hafnaði í gær að veita framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 en áður höfðu Reykjanesbær, Hafnarfjörður og Grindavík samþykkt umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi með atkvæðum allra bæjarfulltrúa sveitarfélagana þriggja.
Hæstiréttur mildaði í dag dóm yfir Júlíusi Vífli Ingvarssyni, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, fyrir peningaþvætti
Lengri umfjöllun:
Þúsundir manna hafa lagt leið sína að gosstöðvunum í Geldingadölum undanfarna daga og bílaröðin þar sem fólk leggur ökutækjum á Suðurstrandavegi í nágrenni stikuðu leiðarinnar upp að gosstöðvunum er margra kílómetra löng. Aka verður í gegnum Grindavík til að komast að gönguleiðinni. Kristján Sigurjónsson ræðir við Fannar Jónasson bæjarstjóra í Grindavík um stóraukna umferð í gegnum bæinn, skipulag á móttöku ferðamanna o.fl.
Vísindaráð almannavarna kom saman í dag til að ræða jarðeldana í Geldingadölum á Reykjanesskaga. Nú eru sex dagar frá því gosið hófst. Halldór Geirsson jarðeðlisfræðingur og dósent við Háskóla íslands sat fundinn og segir frá stöðu gossins, kvikuflæði, gaseitrun og skjálftavirkni. Kristján Sigurjónsson talar við hann.
Íbúar ellefu sveitarfélaga greiða í ár atkvæði um að sameinast nágranna sveitarfélögum sínum. Þreifingar eða viðræður í sameiningarátt standa yfir á fimmtíu og einu prósenti landsins - landfræðilega séð. Þar búa um 6% íbúa. Talsverð hreyfing hefur verið í sameiningu sveitarfélaga undanfarin misseri. Tvö ný sveitarfélög hafa orðið til á síðustu árum; Múlaþing á Austurlandi og Suðurnesjabær á Suðurnesjum. Nú eru sveitarfélög landsins 69 og talsverðar líkur á að þeim fækki á næstunni. Í sumar og í haust á að greiða atkvæði í 11 sveitarfélögum um sameiningu v
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners