?
Að minnsta kosti 60 féllu og 140 særðust í sprengingum við flugvöllinn í Kabúl í dag. Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir afgönskum heilbrigðisstarfsmanni.
Blaðafulltrúi Pentagon staðfestir að bandarískir hermenn séu í hópi þeirra sem létust í tveimur sprengjuárásum í Afganistan í dag. Talsmaður sjúkrahúss í Kabúl segir að sex hafi látist á leið á sjúkrahúsið.
Forstjóri Landspítalans hafnar því að of margir millistjórnendur séu á Landspítalanum á of háum launum, heldur bendi margt til þess að fleiri stjórnendur þyrfti.
Sextán liggja nú á Landsspítalanum vegna COVID-19. Fjórir þeirra eru á gjörgæsludeild.
Fjárfesting í fólki er yfirskrift kosningaáherslna Framsóknarflokksins fyrir komandi kosningar sem kynntar voru í dag.
Sviðslistirnar fagna afléttingu sóttvarnaaðgerða á meðan veitingageirinn telur þær vonbrigði.
Kínverskar fjölskyldur mega nú eignast fleiri börn en nokkru sinni, undanfarna fjóra áratugi. Svo hefur dregið úr fólksfjölgun að það mun vanta fólk á vinnualdri, nema fæðingum fjölgi og það getur hægt á hagkerfinu. Nú er vandinn sá að það vilja ekkert allir eiga fleiri en eitt barn. Ragnhildur Thorlacius sagði frá.
Norðmenn kjósa til þings 13. september. Tekist á um hvort og hvenær eigi að stöðva alla olíuvinnslu við landið. Olía mengar og veldur hlýnun jarðar. Æ fleiri ungir kjósendur vilja róttækar aðgerðir til að stöðva hlýnunina, þar á meðal að Norðmenn hætti að selja olíu. Ríkisstjórn á ekkert svar við þessu og fylgið hríðfellur. Gísli Kristjánsson í Osló sagði frá.
Nú þegar bresk pólitík er að koma úr sumarfríi liggur beint við að huga að stöðu stóru flokkanna tveggja, röðin komin að Verkamannaflokknum. Skoðanakannanir eru ekki upplífgandi lesning fyrir flokksforystuna en spurningin er hvort vandinn liggur hjá leiðtoganum eða flokknum eða er einhver samþætting af hvoru tveggja. Sigrún Davíðsdóttir.