Sáttafundur sem hófst klukkan tvö í dag stendur enn yfir hjá Ríkissáttasemjara. Að óbreyttu hefst tveggja daga verkfall félagsmanna VR og Eflingar á miðnætti. Það nær til 40 hótela og rútufyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu. (Rétt eftir lok Spegilsins var verkfallinu aflýst.)
Fækka á starfsmönnum og verktökum um 400 til að ná tökum á rekstri WOW air, gangi ný viðskiptaáætlun félagsins eftir. Fari WOW air í þrot verður markaðurinn lengur að jafna sig en gert hefur verið ráð fyrir. Þetta segir sérfræðingur Arion banka.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að segja af sér, þegar þingið hefur samþykkt samning hennar og Evrópusambandsins um Brexit. Hún tilkynnti þetta á fundi í Lundúnum í dag.
Innan árs verður öllum föngum á Íslandi tryggð geðheilbrigðisþjónusta. Að þessu marki stefnir Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Fiskeldi Austfjarða hefur fengið leyfi til að hefja laxeldi í Fáskrúðsfirði í vor og til að auka eldi í Berufirði. Leyfisaukningin er næstum 10 þúsund tonn og aukningin verður nær öll ófrjór fiskur. Slíkt hefur aldrei áður verið reynt hér við land.
Innan árs verður öllum föngum á Íslandi tryggð geðheilbrigðisþjónusta. Að þessu marki stefnir Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra. Hún segir að með þessu komi stjórnvöld að fullu til móts við athugasemdir pyntingavarnanefndar Evrópuráðsins og úrbótakröfur Umboðsmanns Alþingis sem í rúm sex ár hefur bent á að sú meðferð sem geðsjúkir fangar sæta hér á landi kunni að brjóta gegn stjórnarskránni og Mannréttindasáttmála Evrópu. Páll Winkel. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Páll Winkel og Svandísi Svavarsdóttur.
Hvernig bregðast hótelin við verkfalli? Arnar Páll Hauksson talar við Ingibjörgu Ólafsdóttur hótelstjóra Hótel Sögu.
Verja á rúmlega fimm milljörðum króna næstu þrjú árin til að byggja upp innviði víða um land og vernda náttúru. Meðal verkefna sem fá fé úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða og úr Framkvæmdasjóði ferðamála er bætt aðgengi að fjörunni við Hvítserk á Vatnsnesi, aðgengi við þrjá manngerða hella á bökkum Ytri-Rangár og fyrsti áfangi hjólaleiðar við Jökulsárgljúfur, úr Ásbyrgi í átt að Dettifossi. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Guðmund Inga Guðbrandsson og Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur.
Umsjón Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon