Spegillinn 26.03.2018
Ísland ætlar ekki að senda rússneska sendiráðsmenn úr landi eins og fjölmörg ríki hafa ákveðið í dag.
Stjórnvöld í yfir tuttugu ríkjum austan hafs og vestan ætla að reka rúmlega eitt hundrað rússneska sendiráðsstarfsmenn úr landi vegna taugaeitursárásar í Bretlandi fyrr í þessum mánuði. Rússar ítreka að hafa engan hlut átt að máli. Ekki er vitað hvort eða hvernig aðgerðunum í dag verður svarað.
Sendiherra Rússlands á Íslandi, Anton Vasiliev, mætti á sjötta tímanum til fundar við Guðlaug Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, í utanríkisráðuneytinu við Rauðarárstíg.
Oddviti Pírata í Reykjavík segir að lögð verði áhersla á aukið gagnsæi í borgarstjórn, komist Píratar til valda í sveitarstjórnarkosningunum í maí.
Klámmyndastjarnan Stormy Daniels fullyrti í fréttaþættinum 60 mínútum í nótt að henni hefði verið hótað líkamsmeiðingum ef hún greindi frá kynferðislegu sambandi hennar við Donald Trump árið 2006. Hún segir að Trump hafi verið óaðlaðandi en fór engu að síður með honum í rúmið. Hún var 27 ára en hann sextugur. Pálmi Jónasson fjallar um málið.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill að Alþingi ræði það hvort hagsmunum Íslands sé betur borgið innan eða utan hins sameininglega orkumarkaðar Evrópusambandsins. Hann segist hallast að því að Ísland eigi að vera utan markaðarins og halda fullum yfirráðum yfir raforkunni. Eftir páska mun Alþingi taka afstöðu til þriðju tilskipunar ESB í orkumálum. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Uppljóstrari sem 2016 vann á vegum samtaka sem börðust fyrir úrgöngu Breta úr Evrópusambandinu hefur nú aukið í söguna af aðkomu Cambridge Analytica í baráttunni. Samkvæmt Shahmir Sanni voru lög um kosningafjármögnun brotin. Málið beinir athyglinni að lykilráðherrum Íhaldsflokksins, hvað þeir vissu og vissu ekki. Þeir neita öllu misjöfnu en málið er óþægilegt fyrir flokkinn og Theresu May forsætisráðherra. Frjálsir demókratar og fleiri krefjast nú rannsóknar. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um málið