Spegillinn 26. Nóv 2018
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Úkraínska þingið fjallar nú um beiðni forseta landsins um að setja herlög, eftir að Rússar hertóku þrjú úkraínsk skip og sjóliða í gær. Vestrænar þjóðir hafa mótmælt framferði Rússa.
Icelandair telur ólíklegt að hægt verði að uppfylla alla fyrirvara í kaupsamningi um WOW fyrir hlutahafafund sem hefur verið boðaður á föstudag. Hlutabréf í Icelandair Group féllu um tæp sex prósent í dag út af óvissunni.
Öryggisrofar voru óvirkir eða búið að fjarlægja hlífar á flökunarvélum í tveimur fiskvinnslum í Hafnarfirði og Sandgerði í þessum mánuði.
Vinnueftirlitið þurfti tvisvar að banna vinnu í vinnslunum.
Beiðni Pírata um að senda mál Ásmundar Friðrikssonar til sjálfstæðrar siðanefndar var hafnað á fundi forsætisnefndar í morgun.
Lengri umfjallanir:
Ekki er minnst á hjúkrunarheimili í drögum að heilbrigðisstefnu og skorið er niður til þeirra í fjárlögum þrátt fyrir að í stjórnarsáttmála sé talað um að gera eigi átak í að fjölga þeim. Þetta segir Pétur Magnússon formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Bergljót Baldursdóttir ræðir við hann.
Bretar hafa náð samningum við ESB um úrgöngu og framtíðarfyrirkomulag en við blasir Brexit-vandi heima og heiman. Breska stjórnin og Evrópusambandið hafa staðfest úrgöngusamning og yfirlýsingu um framtíðarsamband en við blasir þó tvíþættur vandi: að fá staðfestingu breska þingsins á þessum áfanga. Síðan, að semja í smáatriðum um framtíðarsambandið í lagalega bindandi samningi. Hið fyrra virðist ómögulegt, hið seinna gæti orðið mun tímafrekara en þetta rúmlega eitt og hálfa ár sem verður til stefnu. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Fyrsta sjálfstæða sýning Náttúruminjasafns Íslands, Vatnið í náttúru Íslands, verður opnuð í Perlunni í Reykjavík á laugardaginn kemur,1.desember, á 100 ára fullveldisafmæli Íslands. Náttúruminjasafnið varð til árið 2007 þegar lög um safnið voru samþykkt, en á sér í raun mun lengri sögu sem rekja má allt aftur til ársins 1889 þegar Hið íslenska náttúrufræðifélag var stofnað. Illa hefur hins vegar gengið að koma upp Náttúruminjasafni og sýningu í eigu þjóðarinnar sem sómi er af, líkt og flestar nágrannaþjóðir leggja metnað sinn í að starfrækja. Vatnið í náttúru Íslands í Perlunni er einn fyrsti vísirinn að slíkri sýningu. Fyrir eru í Perlunni náttúrusýningar fyrirtækisins Perlu Norðursins og tengist Vatnasýningin þeim. Kristján Sigurjónsson talar við Þórunni Sigríði Þorgrímsdóttur hönnuð og sýningarstjóra Vatnsins í náttúru Íslands.
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Jón Þór H