Ólafur Björnsson, verjandi Vals Lýðssonar sem ákærður er fyrir að hafa banað bróður sínum, segir að ekki sé hægt að fallast á að hann hafi gert það af ásetningi. Verjandinn hefur gert athugasemdir við að rannsókn málsins sem Kolbrún Benediktsdóttir, varahérðassaksóknari telur að hafi verði sem skyldi.
Rigning kom líklega í veg fyrir mikla gróðurelda við Þingvallavatn í dag, þegar stór sumarbústaður brann til kaldra kola. Tuttugu metra há tré eru allt í kringum bústaðinn.
Dæmi eru um að fólk með fötlun setjist í hjólastóla þó það þurfi ekki á þeim að halda, bara til að passa betur í bílana sem Ferðaþjónusta fatlaðs fólks notar.
Lögregla í þýsku borginni Chemnitz er með mikinn viðbúnað, eftir fjölmenn mótmæli og óeirðir þar í gær, sem beindust að hluta til gegn innflytjendum og flóttafólki.
---
Fyrir ári flúðu hundruð þúsunda Rohingja frá Mjanmar til Bangladess undan ofsóknum og ódæðisverkum stjórnarhersins í Mjanmar. Rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hvatti í morgun til þess að herforingjar í her Mjanmars yrðu sóttir til saka fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi. Aðalheiður Jónsdóttir, mannfræðingur fór sem sendifulltrúi Rauða krossins til Bangladess í vor og var í Kutupalong-búðunum sem eru fjölmennustu flóttamannabúðir í heimi.
Fram á tíunda áratuginn síðustu aldar var fasteignaverð á Íslandi nokkurn veginn það sama hvar sem var á landinu. Ekki lengur - og og engar horfur á að það breytist í bráð. Hræringar sem sjást í stórborgum sjást einnig á Íslandi.
Bandaríska þingið vill að fimm stærstu orkufyrirtæki Evrópu verði beitt refsiaðgerðum, láti þau ekki af þátttöku sinni í lagningu gasleiðslu frá Rússlandi til Þýskalands.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon