Spegillinn

Spegillinn 27. febrúar 2019


Listen Later

Samherji er ekki að undirbúa skaðabótamál gegn Seðlabankanum, segir forstjóri fyrirtækisins. Greinargerð bankaráðs sýni þó að menn hafi verið hafðir fyrir rangri sök og hann vill að stjórnendum Seðlabankans verði vikið frá störfum.
Hann er svikari, rasisti og svindlari sem vildi ekki verða forseti. Þetta sagði Michael Cohen, fyrrum lögmaður Donalds Trump, um forsetann á Bandaríkjaþingi í dag.
Formaður Eflingar segir að það sé túlkunaratriði hvort fimmtungur félagsmanna þurfi að kjósa til að atkvæðagreiðslan um verkfallið 8. mars sé lögleg.
Sjávarútvegsráðherra hefur skipað starfshóp sem á að bregðast við svartri skýrslu Ríkisendurskoðunar um Fiskistofu.
Lögreglan í Noregi hefur fundið ummerki um að Önnu-Elísabetu Hagen hafi verið rænt af heimili sínu í október.
George Pell var kreddufastur og harðsnúinn baráttumaður kaþólsku kirkjunnar sem barðist hatrammlega gegn samkynhneigð, fóstureyðingum, skilnaði, getnaðarvörnum og fyrir skírlífi presta. Sjálfur hefur hann nú verið sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur altarisdrengjum á tíunda áratugnum og gæti átt yfir höfði sér allt að 50 ára fangelsi. Pell er fjármálastjóri Páfagarðs og sem slíkur þriðji maður í virðingarröð kaþólsku kirkjunnar. Pálmi Jónasson segir frá.
Lög um rafrettur taka gildi á föstudaginn. Kaupmenn eru ósáttir við greiðslur til Neytendastofu og þann aðlögunartíma sem þeim var gefinn. Í gær var óskað eftir að hann yrði framlengdur um hálft ár. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Svövu Gerði Ingimundardóttur og Hauk Inga Jónsson .
Heimamenn í litlu samfélagi í Suður-Afríku höfðu betur gegn risastóru áströlsku námufyrirtæki fyrir helgi. Hæstiréttur landsins úrskurðaði á fimmtudag að ekki megi ráðstafa landi til námuvinnslu án samráðs við heimamenn. Pálmi Jónasson sagði frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners