Spegillinn

Spegillinn 27.03.2018


Listen Later

Spegillinn 27.03.2018
Talið er að níu manns hafi látist hérlendis vegna ofneyslu á lyfseðilsskyldum lyfjum eða fíkniefnum það sem af er þessu ári.
Utanríkisráðherra Rússlands, segir að þau lönd sem ráku rússneska erindreka úr landi í gær hafi verið undir þrýstingi frá ráðamönnum í Washington.
Tilskipun Evrópusambandsins í orkumálum sem norska þingið samþykkti síðustu viku, mun ekki taka gildi þar ef Alþingi hafnar henni. Útlit er fyrir að meirihluti Alþingis sé á móti henni.
Fimm lífeyrissjóðir hafa kært Magnús Ólaf Garðarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra og stjórnarmann United Silicon, til embættis héraðssaksóknara.
Náttúruverndarsamtök Suðurlands og Landvernd hafa kært nýtt framkvæmdaleyfi vegna Brúarvirkjunar, í efri hluta Tungufljóts í Biskupstungum.
Ef Alþingi samþykkir ekki þriðju tilskipunina í orkumálum mun hún ekki taka gildi í Noregi. Norska þingið samþykkti hana í síðustu viku. Til að hún öðlist gildi þurfa öll EFTA löndin þrjú að samþykkja. Utanríkisráðuneytið telur óljóst hver lagaleg og pólitísk áhrif yrðu ef Ísland samþykkir ekki. Það telur þó ekki ólíklegt að áhrif slíkrar ákvörðunar á EES- samstarfið yrðu meiri en aðeins þau að gildistöku yrði frestað til bráðabirgða. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur veitt sex höfðingjum frumbyggja, sem voru líflátnir fyrir 150 árum, sakaruppgjöf og hreinsað mannorð þeirra. Trudeau baðst formlega afsökunar á ódæðinu í kanadíska þinginu. Pálmi Jónasson tók saman.
Margir þeirra sem berjast gegn spillingu í heiminum telja London eina allsherjar þvottastöð fyrir illa fengið fé. Sigrún Davíðsdóttir fór í ferð um borgina með samtökum sem berjast gegn þjófræði og peningaþvætti í breskum eignum. Erindið var að sjá húseignir í eigu Rússa í innsta hring Vladimir Pútíns Rússlandsforseta sem sumir telja auðugasta mann í heimi. Tilgangurinn var að minna á þessi tengsl eftir tilræðið við gagnnjósnarann Sergei Skripal og dóttur hans. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners