Spegillinn

Spegillinn 27.desember 2018


Listen Later

Þrír breskir ríkisborgarar, eitt barn og tveir fullorðnir, létust í alvarlegu umferðarslysi við Núpsvötn í morgun. Tvö börn á aldrinum 7 til 9 ára og tveir fullorðnir voru fluttir alvarlega slasaðir á slysadeild Landspítalans. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar tildrög slyssins.
Lögregla hefur handtekið einn mann vegna ráns í íbúð manns í Hátúni í Reykjavík. Tveggja er enn leitað. Manninum var hirint úr hjólastól og eigum hans stolið.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að farið verði fram á að VR og Efling falli frá kröfu um afturvirkni samninga ef þau boða til verkfalla.
Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands telur að útganga Japana úr Alþjóðahvalveiðiráðinu geti haft áhrif á útflutning á íslensku hvalkjöti til Japans.
Það var nokkuð áberandi þessi jól hve margir sendu jólakveðjur á Facebook og slepptu því að senda jólakort til vina og ættingja með pósti. Þetta er í samræmi við þróun sendibréfa sem sjást varla lengur. Dæmi eru um að fólk á miðjum aldri leiti aðstoðar á pósthúsum vegna þess að það hefur aldrei sent bréf. Arnar Páll Hauksson ræðir við Evu Gunnarsdóttur afgreiðslustjóra gjá Póstinu.
Volkswagen ætlar fram til ársins 2023 að verja yfir sex þúsund milljörðum króna til að þróa nýja rafbíla. Hlutfall rafbíla af íslenska bílaflotanum er nú tæpt eitt prósent.
Síðla árs kom út síðasta og þrítugasta fyrsta bindi ritraðarinnar Kirkjur Íslands, þar fjalla um 70 höfundar á kerfisbundinn hátt um allar friðaðar kirkjur í landinu, 216 að tölu; um tvo þriðju kirkna í landinu. Þorsteinn Gunnarsson er annar tveggja ritstjóra verksins, sem lagt var upp í fyrir rúmlega tuttugu árum. Það er mikið að vöxtum, til ritraðarinnar var stofnað til að merkja þúsund ára afmæli kristni en hún hefur líka að geyma mikla menningarsögu. Anna Kristin Jónsdóttir talar við Þorstein Gunnarsson.
Umsjón Arnar Páll Hauksson.
Tæknimaður Mark Eldred.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners