Spegillinn 27. Nóv 2018
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Afkoma flugfélagsins Wow Air er mun verri á yfirstandandi ársfjórðungi en búist var við þegar fyrirtækið stóð fyrir skuldabréfaútboði í haust. Fækkað verður í flota félagsins um fjórar Airbus-vélar.
Bankaráð Seðlabankans fundaði í dag með forstjóra Samherja sem segist enn vera þeirrar skoðunar að Már Guðmundsson seðlabankastjóri eigi að láta af embætti.
Eðlilegt er að afkomutengja veiðigjöld og hafa álagningu eins nálægt í tíma og hægt er, segir forsætisráðherra. Snarpar umræður hafa staðið yfir á Alþingi í dag um frumvarp sjávarútvegsráðherra um veiðigjöld.
Tilraunir til að takast á við loftslagsbreytingar á alþjóðavísu eru langt frá því að skila viðunandi árangri, að mati Sameinuðu þjóðanna. Í næstu viku hefst loftslagsráðstefna í Póllandi.
Fyrirtækið sem rak tónlistarhátíðina Secret Solstice skuldar fjölda manns laun og stendur afar illa fjárhagslega. Nýtt fyrirtæki hefur tekið við rekstri hátíðarinnar, sem stendur til að halda í fimmta sinn.
Lengri umfjallanir:
Ökumenn í áfalli og þeir sem þeir hafa ekið á í myrkrinu koma á bráðamóttöku. Bráðahjúkrunarfræðingar skora á framleiðendur útivistarfatnaðar að setja endurskin á allan útivistarfatnað. Helga Rósa Másdóttir, formaður fagdeildar bráðahjúkrunarfræðinga segir að hver einasti bráðahjúkrunarfræðingur hafi tekið á móti bæði ökumönnum í áfalli og þeim sem þeir hafa ekið á í myrkrinu. Bráðahjúkrunarfræðingar skora á framleiðendur útivistarfatnaðar á Íslandi að setja endurskin á allar útivistarflíkur. Bergljót Baldursdóttir talar við Helgu Rósu
Horfur eru á því að samtök sem berjast gegn veggjöldum í Noregi bjóði fram á fjölmörgum stöðum í sveitarstjórnarkosningunum á næsta ári. Áætlað er að á þessu ári verði innheimt veggjöld fyrir röska 200 milljarða íslenskra króna. Formaður samtakanna segir að ef vel gangi á næsta ári komi til greina að bjóða fram í þingkosningum. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Heimsmeistaraeinvígi Magúsar Carlsen og Fabiano Caruana stendur nú yfir í Lundúnum. Allar skákirnar 12 enduðu með jafntefli og er staðan því jöfn 6-6. Á morgun verður úrslitadagur, en þá verður teflt til þrautar í hrað- og atskákum. Björn Þorfinnson skákmeistari og fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands hefur fylgst vel með og ræðir við Kristján Sigurjónsson um einvígið.