Stjórnarformaður Icelandair segir mistök hafi verið gerð þegar leiðakerfi félagsins var breytt. Hann segir ekki hafa verið lagt að forstjóranum að segja upp.
Félags- og jafnréttismálaráðherra vill að fyrirtæki bretti upp ermarnar og ljúki jafnlaunavottun fyrir áramótin. Engin ákvörðun hafi verið tekin um hvort dagsektum verði frestað.
Fyrirtækið Eco Marine Iceland hóf fyrr í sumar tilraunaveiðar á ljósátu í Ísafjarðardjúpi með nýju veiðarfæri, í samstarfi við norskt fyrirtæki. Verkefnastjóri segir ekki liggja fyrir hvernig eigi að nýta ljósátuna ef veiðarnar gefa góða raun.
Tæplega 60% fleiri óku undir áhrifum ávana- og fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu Í fyrren árið áður.
Verslunarhús í miðborg Belfast stendur í ljósum logum og óttast menn að það hrynji. Þetta er mesti eldsvoði í borginni um áratugaskeið.
Forstjóri Icelandair sagði upp í gær og mikill órói hefur verið á markaði með hlutabréf í félaginu í dag og stutt er síðan fréttir bárust af því að WOW leitaði eftir auknu fjármagni í rekstur sinn. Hver telur Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar verða áhrif þess á stöðu ferðaþjónustunnar almennt þar sem hægt hefur á þenslu.
Núna eru hafin í Noregi réttarhöld þar sem kviðdómendur fá í síðasta sinn að skera úr um sekt eða sakleysi sakbornings. Mikilli og ruglingslegri umfjöllun samfélagsmiðlum um fræg sakamál er kennt um að kviðdómar séu óstarfhæfir. Að þessu sinni á að að dæma í máli lögreglumanns grunaðann um of mikli tengsl við glæpamenn Óslóarborgar. Gísli Kristjánsson í Noregi segir frá.
Skúmey, sennilega yngsta eyja landsins, kom undan jökli um síðustu aldamót. Kristín Hermannsdóttir forstöðumaður Náttúrustofu Suðausturlands segir þarna tækifæri á borð við það þegar Surtsey reis úr sæ til að kanna gróðurfar, landmótun og dýralíf.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon