Formannafundur ASÍ samþykkti í dag að segja ekki upp samningum. Verkalýðshreyfingin boðar harða kjarabaráttu og átök þegar kjarasamningar losna um áramótin.
Forsætisráðherra segir að samtal stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins, sem hafi skilað miklum árangri, geti nú haldið áfram í ljósi þess að ákveðið var að segja ekki upp samningum. Framkvæmdastjóri SA segir niðurstöðu formannafundarins í dag skynsamlega.
Varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis og þingmaður VG, segir að vopnaflutningur íslensks fyrirtækis til stríðssvæða sé grafalvarlegt mál og stangist á við lög og utanríkisstefnu Íslands.
Þingmenn geta ekki hafnað því að fá fastar mánaðarlegar greiðslur vegna starfa í þinginu, ferðalaga og húsnæðis- og dvalarkostnaðar.
Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnukvótinn verði ekki aukinn.
Kjarasamningum sagt upp. Arnar Páll Hauksson talar við Ragnar Þór Ingólfsson formann VR og Guðmund Ragnarsson formann VM.
Umsjón Arnar Páll Hauksson.
Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magúnsson