Spegillinn

Spegillinn 28. janúar 2018


Listen Later

Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
Saksóknari krafðist í héraðsdómi dag meira en fjögurra ára fangelsisvistar yfir manni sem ákærður er fyrir að hafa hrint dyraverði á skemmtistað í Reykjavík með þeim afleiðingum að hann lamaðist fyrir neðan háls. Saksóknari segir að mennirnir hafi sammælst um að ráðast á dyraverðina til að hefna sín fyrir brottrekstur af barnum fyrr um kvöldið. Því hafna sakborningar.
Úrganga Bretlands úr ESB án samnings gæti leitt til þess að framboð á ýmsum matvælum minnki og verð hækki í landinu. Þetta segja stjórnendur stærstu matvöruverslanakeðja í Bretlandi.
Launamunur kynjanna er mestur hjá starfsfólki í fjármála- og vátryggingarstarfsemi, rúm 40 prósent. Óleiðréttur launamunur kynjanna var rúmlega 15 prósent árið 2017, samkvæmt tölum Hagstofunnar og hefur ekki verið minni.
Sólardagurinn á Sigló var haldinn hátíðlegur í dag.
Lengri Umfjallanir:
Ákvörðun dómara í norska Lögmannsréttinum, um að hafna úrskurði kviðdóms í máli lögreglumanns sem dæmdur var í tuttugu og eins árs fangelsi fyrir spillingu og aðild að smygli á tæpum 14 tonnum af hassi, hefur vakið hörð viðbrögð. Verjandi mannsins hefur áfrýjað ákvörðuninni til Hæstaréttar. Úrskurður kviðdómsins var sá síðasti í rúmlega 130 ára sögu kviðdóms í Noregi. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Mikil spenna er í Venesúela og þar ríkir upplausn. Svo virðist sem næstu dagar skipti sköpum um það hvort valdaskipti verða í landinu. Hvort Nicolas Maduro forseta tekst að standa af sér gríðarlegan pólitískan þrýsting, jafnt innanlands sem utan og halda völdum, eða hvort forseta þingsins, Juan Guaido (Húan Gvædó), tekst að hrekja hann frá völdum. Guaido, sem fyrir nokkrum dögum lýsti sig réttkjörinn forseta landsins, hvetur almenning til þess að leggja niður vinnu á miðvikudag og safnast saman á mótmælafundum á laugardag til að krefjast þess að Maduro og stjórn hans segi af sér. Kristján Sigurjónsson segir frá.
Víða um heim hefur fólki verið auðveldað að kjósa sjálft hvenær og hvernig það yfirgefur þennan heim og fá til þess aðstoð heilbrigðisstarfsmanna eða annarra. Í Hollandi og Sviss hefur líknardráp verið löglegt um árabil, og líknardráp og dánaraðstoð, þar sem einhver aðstoðar annan við að fyrirfara sér, er leyfð í fleiri löndum, til dæmis Kanada, Belgíu, Viktoríufylki í Ástralíu og þó nokkrum ríkjum Bandaríkjanna, þar á meðal því fjölmennasta, Kaliforníu. Í umfjöllun í Guardian nýlega eru því gerðir skórnir að þess sé kannski ekki lengi að bíða að líknardráp verði bara einn kostur af mörgum, hverjum þei
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners