Mikil truflun verður á starfsemi fæðingarþjónustu Landspítalans um mánaðamótin þegar 12 ljósmæður hætta störfum. Konur verða útskrifaðar eins fljótt og hægt er og biðlað hefur verið til samstarfsstofnana í nágrenni Reykjavíkur um hjálp.
Á helstu ferðamannastöðum landsins hefur ferðamönnum fjölgað eða fjöldi þeirra staðið í stað það sem af er ári.
Framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga segir fullljóst að dýrara verði að keyra um göngin en Hvalfjarðargöng. Líklegt sé að meðalgjaldið verði um 1.200 krónur.
Búrfellsstöð tvö var gangsett við hátíðlega athöfn í dag.
Grímseyingar eru hæstánægðir með tvö ný almenningsklósett í eyjunni. Von er á hátt í fjörutíu skemmtiferðaskipum til Grímseyjar í sumar.
Formaður samninganefndar ljósmæðra segir að staðan í kjaradeilunni sé grafalvarleg. Krafa ljósmæðra
sé að grunnlaun þeirra hækki í samræmi við aðrar stéttir með sambærilega menntun, lækna, verkfræðinga, lögfræðinga og dýralækna. Ljósmæður vilja líka styttri vinnutíma vegna vaktavinnu.Tólf ljósmæður hætta störfum um mánaðamótin. Aðgerðaráætlun Landspítalans verður sett af stað um helgina. Arnar Páll Hauksson ræðir við Katrínu Sif SIgurgeirsdóttur.
Hvert er samband menntunar og starfa á íslenskum vinnumarkaði og hvernig hefur það samspil þróast síðustu tíu ár? Þetta var meðal þess sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands skoðaði í nýrri skýrslu fyrir velferðarráðuneytið og er hluti af undirbúningsvinnu við mat á færni- og menntunarþörf á Íslandi. Sigurður Björnsson, hagfræðingur á Hagfræðistofnun, segir að myndin hafi breyst mikið frá því 2008. Anna Kristín Jónsdóttir.
Í fyrra var hvarf hitabeltisskógur af svæði á stærð við fjörutíu fótboltavelli á hverri einustu mínútu. Á einu ári gerir það rúmlega 21 milljón fótboltavalla og flatarmál þeirra er stærra en Íslands. Þetta kemur fram í nýrri úttekt bandarísku samtakanna Global Forest Watch. Aðeins einu sinni áður hefur stærra skógsvæði tapast á einu ári, það var árið 2016. Prófessor í skógfræði segir að heilt yfir hafi skógeyðing á heimsvísu minnkað síðastliðin ár en vandinn sé alvarlegur. Arnhildur Hálfdánardóttóttir.
Umsjón Arnhildur Hálfdánardóttir