Óformlegar viðræður flokkanna í Reykjavík um myndun nýs meirihluta hafa farið fram í dag. Allir eru að tala við alla, segja flestir viðmælendur fréttastofu. Forysta Viðreisnar situr nú á fundi til að fara yfir stöðuna. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti þeirra í Reykjavík sagði nú rétt áðan að hún talaði bæði oddvita Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins í dag.
Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og Bein leið hafa hafið formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta í Reykjanesbæ.
Atkvæði sem voru greidd í bæjarstjórnarkosningunum í Borgarbyggð verða talin aftur á morgun. Sjálfstæðisflokkurinn fór fram á endurtalningu þar sem aðeins munar níu atkvæðum á þriðja manni á framboðslista þeirra og fjórða fulltrúa Framsóknarflokksins sem náði inn í bæjarstjórn.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og H-lista fólksins hafa rætt saman um myndun meirihluta í bæjarstjórn í sameinuðu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis.
Tillaga um að lýsa yfir vantrausti á störf forseta ASÍ verður borin upp á aðalfundi verkalýðsfélagsins Framsýnar í kvöld.
Angela Merkel kanslari Þýskalands ræddi mannréttindi í heimsókn sinni til Kína og talaði við lögfræðinga og aðstandendur baráttufólks fyrir mannréttindum sem er í haldi stjórnvalda í Kína.
Pálmi Jónasson fer yfir meirihlutamyndanir víðs vegar á landinu og ræðir við Þórhildi Þorkelsdóttur og Hallgrím Indriðason
Arnar Páll Hauksson fer yfir átök í verkalýsfélaginu og vantrausttillögu á formann ASÍ á þingi Framsýnar. Ræðir við Aðalstein Baldursson, formann Framsýnar
Úrslit þjóðarkvæðagreiðslu á Írlandi á laugardag um fóstureyðingar mun leiða til breyttra laga um þau efni þar. En úrslitin snerta einnig bresk stjórnmál. Það gæti reynst Theresu May forstætisráðherra Breta erfitt viðfangsefni. tjórn hennar er í raun minnihlutastjórn studd norður-írska Sambandsflokknum. Sigrún Davíðsdóttir fer yfir stöðuna í Speglinum.