Spegillinn

Spegillinn 29. janúar 2019


Listen Later

Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
Forstjóri Icelandair býst við um tíu prósenta vexti hjá félaginu í ár, þrátt fyrir að Isavia spái því að farþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll fækki.
Theresa May forsætisráðherra Bretlands vill nýjan útgöngusamning við Evrópusambandið. Hún lýsti þessu yfir á breska þinginu í dag. Bretar ganga úr ESB eftir tvo mánuði.
Heilbrigðisráðherra vill svör frá Landspítala og öðrum heilbrigðisstofnunum við tillögum hennar til að fjölga hjúkrunarfræðingum um miðjan næsta mánuð.
Forsætisnefnd Alþingis ákvað í morgun að Róbert H. Haraldsson tæki sæti Salvarar Nordal í siðanefnd Alþingis tímabundið. Róbert er sviðsstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands. Fram kom í fréttum í gær að Margrét Vala Kristjánsdóttir tekur sæti Hafsteins Þórs Haukssonar. Nefndin er þriggja manna og er formaðurinn Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Nefndin mun fjalla um Klausturmálið.
Samfélagsmiðlar og nútímatækni hafa gjörbreytt lýðræðislegri umræðu, segir forsætisráðjherra. Samfélagsmiðlar verða til umræðu á næsta fundi þjóðaröryggisráðs.
Petro Poroshenko, forseti Úkraínu, sækist eftir því að gegna embættinu annað kjörtímabil.
Það er mikilvægt að hafa starfandi verslun til að viðhalda byggð og mannlífi í sveitarfélaginu, segir verkefnastjóri brothættra byggða í Árneshreppi á Ströndum. Fjöldi fólks hefur skráð sig sem hluthafa í nýju einkahlutafélagi fyrir verslun í Norðurfirði.
Fyrstu pálmatrén utandyra á Íslandi verða hluti af listaverki sem prýða á nýja íbúðabyggð í Reykjavík. Pálmatrén eru tvö og þau verða í upphituðum glerhjúp í svokallaðri Vogabyggð, sem er nýtt íbúðahverfi sunnan Kleppsmýrarvegar og austan Sæbrautar, þar sem nú er gamalt iðnaðarhverfi í kringum Súðarvog.
Lengri umfjallanir:
Það var enn einn hasardagurinn í og við breska þingið í dag þegar þingmenn ræddu tillögur um framvinduna í útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Það voru þingumræður í dag og svo verður kosið um tillögur núna frá kl. 7. Kristján Sigurjónsson talar við Sigrúnu Davíðsdóttur í Lundúnum.
Þó að 30 ár séu liðin síðan Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var samþykktur býr eitt af hverjum fjórum börnum á svæðum þar sem neyð ríkir og eitt af hverjum sex á átakasvæðum. Stríðsátök hafa ekki verið meiri en nú í 30 ár UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sendi í dag út ákall um að ríki heims leggi sitt af mörkum til að veita börnum sem búa við neyð og hörmungar nauðsynlega aðstoð og hjálp. Neyðaráætlun Barnahjálparinnar hljóðar upp á 3,9 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði um 470 milljarða íslenskra
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners