Samstaða hefur náðst í ríkjahópi Vesturlanda hjá Sameinuðu þjóðunum að Ísland gefi kost á sér til að taka það sæti sem losnaði í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna við úrsögn Bandaríkjanna .
Framkvæmdastjóri hjúkrunar á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að allt verði gert til að tryggja öryggi mæðra og barna. Vegna uppsagna ljósmæðra á Landspítalanum eykst álag á heilsugæslustöðvar.
Bragi Guðbrandsson, fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu, var í dag kjörinn í nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna, til næstu fjögurra ára.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður laga- og mannréttindanefndar Evrópuþingsins, segir það áhyggjuefni ef Landsréttarmálið verði fordæmisgefandi mál vegna þess að dómstólar séu ekki sjálfstæðir á Íslandi.
Ísland er annars flokks í baráttunni gegn mansali, samkvæmt nýrri bandarískri skýrslu, einkum vegna þess að hér hefur ekki verið ákært fyrir mansalsbrot síðan 2010
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrst íslenskra þingmanna til að gegna formennsku í mannréttindanefnd Evrópuráðsþingsins. Arnar Páll talar við hana.
Hvernig er veðrið? Arnar Páll talar við Höllu Ólafsdóttur, Ágúst Ólafsson og Rúnar Snæ Reynisson.