Heilbrigðisráðherra ætlar að skipa stýrihóp sem hefur það hlutverk til að stemma stigu við ofneyslu verkjalyfja og geðlyfja. Hún segir að Íslendingar þurfi að vera vel á verði gagnvart hugsanlegum faraldri í neyslu sterkra verkjalyfja.
Stefnt er á alþjóðlegt útboð á hlutum í Arion banka, meðal annars í Bandaríkjunum.
Eftirlitsmyndavélum lögreglu í miðbæ Reykjavíkur hefur verið fjölgað um 10. Þær eru nú um 30 talsins.
Háskólinn í Reykjavík hefur ákveðið að bjóða nemendum upp á sálfræðiþjónustu í skólanum. Þjónustan er veitt af sálfræðisviði HR í samstarfi við náms- og starfsráðgjöf háskólans.
Formannsslagur í Eflingu. Rætt við Ingvar Vigur Halldórsson og Sólveigu Önnur Jónsdóttur sem gefa kost á sér í formannskjöri.
Útboð á hlutum í Arion banka. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Umsjón. Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður Ragnar Gunnarsson.