Spegillinn 29.04.2019
Umsjón: Pálmi Jónasson
Stjórn Persónuverndar hafnaði nú síðdegis kröfu lögmanns fjögurra þingmanna Miðflokksins um frekari gagnaöflun í Klausturmálinu.
Náttúruverndarsamtök Íslands telja loftlagsfrumvarp umhverfisráðherra tilgangslaust. Þau vilja að það verði dregið til baka og unnið betur.
Gert er ráð fyrir löngum stjórnarmyndunarviðræðum á Spáni eftir þingkosningarnar í gær. Spænsku stjórnmálaflokkarnir eru enn í kosningabaráttu þar sem kosið verður til héraðs- og sveitarstjórna og Evrópuþings í næsta mánuði.
Skipulagsstofnun telur uppbyggingaráform í Kerlingarfjöllum falla illa að gildandi landsskipulagsstefnu um hálendið.
Landsréttur hefur staðfest farbann yfir konu sem var með sjö þúsund oxycontin-töflur inni í fóðri ferðatösku þegar hún kom til landsins frá Alicante á Spáni.
Sósíalistar undir stjórn forsætisráðherrans Pedro Sanchez unnu stórsigur í þingkosningunum á Spáni í gær en Lýðflokkurinnn galt sögulegt afhroð. Þjóðernispopúlistaflokkurinn VOX fékk rúm tíu prósent en þeir berjast gegn innflytjendum, femínisma og aðskilnaðarsinnum. Það stefnir allt í fyrstu samsteypustjórnina í sögu lýðveldisins. Pálmi Jónasson segir frá.
Náttúruverndarsamtök Íslands telja loftlagsfrumvarp umhverfisráðherra tilgangslaust. Þau vilja að það verði dregið til baka og unnið betur. Þau gagnrýna að ekki sá finna skilgreint markmið stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Ljóst sé að draga verði mun meira úr losun til að halda hlýnun undir tveimur gráðum. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Alveg frá fyrstu tímum byggðar á Íslandi hafa tengslin við Bretlandseyjar verið mikil og svo er enn, hvort sem er fjöldi ferðamanna eða fjöldi flugleiða. Og það er þegar búið að tryggja íslenska hagsmuni þegar kemur að úrgöngu Breta úr Evrópu, bæði varðandi gagnkvæm borgararéttindi og eins vöruviðskipti. Tilgangur heimsóknar Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra til Bretlands er fyrst og fremst að styrkja enn frekar samband landanna. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.