Samninganefndir ljósmæðra og ríkisins skrifuðu undir nýjan kjarasamning hjá Ríkissáttasemjara nú rétt fyrir fréttir.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Mjólkursamsöluna til að greiða 480 milljónir, í sekt fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína og torvelda rannsókn Samkeppniseftirlitsins.
Kona varð af leiðréttingu verðtryggðs fasteignaláns vegna þess að hún gekk í hjónaband stuttu eftir að hún sótti um leiðréttingu. Umboðsmaður Alþingis telur ríkið hafa brotið á konunni.
Grípa verður til brýnna aðgerða til að afstýra hungursneyð í Suður-Súdan. Þetta segja hjálparsamtökin Oxfam og segja milljónir manna í hættu.
Bresk þingnefnd ályktar að flæði illa fengins rússnesks fjár inn í breskt hagkerfi sé ógnun við öryggi landsins.
Leikritið Himnaríki og helvíti fær flestar tilnefningar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna í ár.
Pálmi Jónasson og Hallgrímur Indriðason fara ítarlega yfir stöðu meirihlutamyndana víðs vegar um land í Speglinum.
Stefnt er að því að ný persónuverndarlög hér á landi taki gildi í byrjun júlí. Þegar eru farnar að berast fyrirspurnir til tryggingarfélagsins VÍS um eyðingu persónulegra gagna. Arnar Páll Hauksson fer yfir stöðuna með Rögnu Elízu Kvaran, persónuverndarfulltrúa hjá tryggingafélaginu VÍS.
Morðtilræðið við rússneska gagnnjósnarann Sergei Skripal og dóttur hans vakti bresk yfirvöld til meðvitundar um skuggahliðar rússnesks fjár í Bretlandi. Samkvæmt nýrri skýrslu breskrar þingnefndar hefur Vladimir Pútín Rússlandsforseti þetta fé tiltækt í undirróðursstarfsemi sem grafi undan vestrænum gildum. En viðbrögð bresku stjórnarinnar í Skripal-málinu hafa líka afhjúpað breskan tvískinnung gagnvart rússneskum ólígörkum sem auðgast í skjóli Pútíns. Sigrún Davíðsdóttir fer yfir málið í Speglinum.
Umsjónarmaður: Pálmi Jónasson