Spegillinn

Spegillinn 29.mars 2021


Listen Later

Spegillinn 29.mars 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
Herða þarf aðgerðir á landamærunum enn frekar, eigi að takast að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar segir sóttvarnalæknir.
Byrjað verður að dreifa bóluefni Janssen gegn COVID-19 nítjánda apríl.
Réttarhöld yfir morðingja blökkumannsins George Floyds hófust í Bandaríkjunum í dag.
Risaflutningaskipið Ever Given sem strandaði í Súesskurðinum á þriðjudag er komið á flot
Hraunflæði úr eldgígunum í Geldingadölum hefur haldist stöðugt síðustu daga, þó ásýnd gíganna hafi tekið stakkaskiptum
Bæjarstjórinn á Akureyri segir allt benda til að samningar um yfirtöku á rekstri hjúkrunarheimila í bænum náist í tæka tíð. Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir að niðurstaða eigi að liggja fyrir innan skamms.
Settur umboðsmaður Alþingis gerir engar athugasemdir við úrskurð dómsmálaráðuneytisins sem sneri við ákvörðun Þjóðskrár Íslands í máli stúlku sem vildi kenna sig við móður sína en ekki föður. Umboðsmaður segir hagsmuni barns geta vegið þyngra en hagsmuni foreldris sem er andvígt nafnabreytingu.
Lengri umfjöllun:
Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir að bregðast þurfi hratt við að byggja upp innviði í nágrenni jarðeldanna í Geldingadölum. Útlit er fyrir að staðurinn verði fjölsóttasti ferðamannastaður landsins næstu misserin, óháð því hvort gos haldi þar áfram eða ekki. Aðsóknin og áhuginn meðal Íslendinga sé mjög mikill og hálfgert lán í óláni að erlendir ferðamenn eigi tæplega kost á að sjá gosið um þessar mundir vegna sóttvarnaraðgerða á landamærum. Ferðamálastofa hefur talið hversu margir hafa lagt leið sína fótgangandi að gosstöðvunum undanfarna daga með sérstökum teljurum við gönguleiðina. 5600 manns fóru að jarðeldunum í gær, en um 16000 síðustu sjö daga. Kristján Sigurjónsson talaði við Skarphéðinn.
Nýtt stjórnsýslustig - heimastjórnir í hinu nýja Múlaþingi hafa virkað ágætlega að mati tveggja heimastjórnarmanna. Annar hefur þó áhyggjur af auknu flækjustigi í stjórnsýslu og hinn hefði viljað að heimastjórnir hefðu aðeins meiri völd, og svolítið fé til ráðstöfunar.
Ragnhildur Thorlacius fjallar um sameiningu sveitarfélaga 3. hluti og talar við Jódísi Skúladóttur, Rúnar Gunnarsson sveitarstjórna- og heimastjórnarfólk í Múlaþingi og Anton Kára Halldórsson formann samstarfsnefndar um sameininguna á Suðurlandi .
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners