Spegillinn

Spegillinn 29.nóvember 2018


Listen Later

Rösklega 200 starfsmönnum var í dag sagt upp hjá Airport Associates, APA, á Keflavíkurflugvelli, stærsta þjónustufyrirtækis WOW air.
Óskað hefur verið eftir því að forsætisnefnd Alþingis fjalli um ummæli sex þingmanna í liðinni viku á bar í Reykjavík. Þingkona segir að henni sé illt í hjartanu vegna þessara ummæla og önnur segir þau ömurleg og niðurlægjandi.
Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, segist vera að skoða stöðu sína á Alþingi. Hún eigi sér engar málsbætur. Hún var ein sexmenninganna á barnum.
Fjallvegir á norðanverðu landinu eru enn lokaðir og víða er vonskuveður. Öllu innanlandsflugi var aflýst í dag.
Sérfræðingur í markaðsetningu á netinu segir að Facebook geymi gífurlegar miklar upplýsingar um notendur samfélagsmiðla og viti jafnvel meira um fólk en það sjálft
Almenningi er misboðið og þingheimur nötrar eftir að umræður sex þingmanna sem sátu að sumbli á bar voru teknar upp án þeirra vitundar og birtar. Þar voru þau Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Anna Kolbrún Árnadóttir og Bergþór Ólason þingmenn Miðflokksins, og Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason úr Flokki fólksins. Það eru ummæli þessara þingmanna eða orðfæri sem hefur farið fyrir brjóstið á mörgum. Ummælin þykja skammarleg og lýsa megnri kvenfyrirlitningu. Það er óhætt að fullyrða að þessir þingmenn hrauni yfir samstarfsmenn sína á þingi, einkum konur. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Evu Heiði Önnudóttir stjórnmálafræðing.
Þór Matthíasson, þróunarstjóri hjá markaðs- og tæknifyrirtækinu Svartagaldri notar sjálfur ekki Facebook. Hann segir að því meira sem fólk birti á Facebook því meira viti fyrirtækið um það. Hann telur að persónuupplýsingar af samfélagsmiðlum verði líklega notaðar í kosningum framvegis. Bergljót Baldursdóttir talar við Þór Matthíasson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners