Spegillinn

Spegillinn 29.nóvember 2021


Listen Later

Spegillinn 29.nóvember
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Gert er ráð fyrir áframhaldandi hallarekstri ríkissjóðs en ekki verður gripið til niðurskurðar og skattahækkana í nýjum fjárlögum segir fjármálaráðherra. Staða ríkissjóðs sé miklu betri en horfur voru á fyrir rúmu ári.
110 af 212 markmiðum ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmálanum eru bæði óskilgreind og ótímasett. 81 markmið má flokka sem skilgreint en hvorki tímasetning né útfærsla liggur fyrir
Íshellan í Grímsvötnum hefur nú sigið um tæpa fimm metra, en hún sígur hægt. Rennsli Gígjukvíslar er um 240 rúmmetrar á sekúndu. Miðað við mælingar á vatnsstöðunni í Grímsvötnum gæti hámarksrennsli hlaupsins orðið um 5.000 rúmmetrar á sekúndu.
Stjórnarandstaðan fær aðeins formennsku í einni fastanefnd Alþingis.
Verðbólga í Þýskalandi er komin yfir fimm prósent og hefur ekki verið meiri í tæpa þrjá áratugi. Seðlabanki Evrópu telur ekki rétt að grípa til aðgerða að sinni.
Grunur leikur á að tveir einstaklingar sem komu nýverið frá Suður-Afríku til Svíþjóðar séu smitaðir af omikron afbrigði kórónuveirunnar.
Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar kemur fram að mótuð verði stefna um að skilgreina frekar svæðisbundið hlutverk Akureyrar sem stærsta þéttbýliskjarnans á landsbyggðinni. Formaður Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra segir þetta viðurkenningu stjórnvalda á að byggja upp annað borgarsvæði á Íslandi.
Síðdegisumferðin á höfuðborgarsvæðinu hefur gengið mjög hægt í dag vegna hálku og éljagangs. Þá varð árekstur á á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú, á milli Kópavogs og Garðabæjar rétt fyrir klukkan fimm sem olli keðjuverkandi töfum á helstu umferðaræðum.
Lengri umfjöllun:
Rykið er enn að setjast eftir að ríkisstjórnarsáttmálinn var kynntur í gær og starfsfólk stofnana ríkisins reynir að átta sig á nýjum veruleika. Þetta á sérstaklega við um þær stofnanir sem nú heyra undir nýtt eða verulega breytt ráðuneyti. Mennta- og menningarmálaráðuneytið er þrí- ef ekki fjórklofið, háskólinn færist yfir í nýtt ráðuneyti vísinda, iðnaðar og nýsköpunar sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrum dómsmálaráðherra stýrir. Hin skólastigin verða hjá Ásmundi Einari Daðasyni, skóla- og barnamálaráðherra og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, flokksystir hans og fyrrum menntamálaráðherra, heldur í menningarmálin en fær viðskipta- og ferðamál að auki í fangið. Minjasafn Íslands og ýmis menningarverðmæti heyra loks undir umhverfis- og orkumálaráðherra. Guðlaug Þór Þórðarson. Arnhldur Hálfdánardóttir ræðir við Jón Atla Bene
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners