Spegillinn

Spegillinn 29.september 2021


Listen Later

Spegillinn 29.september 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Skjálftavirkni eykst við Keili. Frá miðnætti hafa mælst þrír skjálftar yfir þremur að stærð og um 400 skjálftar í heildina.
Bráðamóttaka Landsspítalans Fossvogi er yfirfull dag eftir dag, af sjúklingum sem þarf að leggja inn á aðrar deildir, en það er ekkert pláss. Í gær var svo fullt að sjúklingar lágu inni á kaffistofu starfsfólks. Deildarstjórinn segir þetta gera starfsfólki erfitt með að sinna bráðveikum og slösuðum sjúklingum og efast um skilning stjórnvalda.
Forsvarsmenn Tryggingafélagsins Sjóvár segir rangt að iðgjöld hafi verið oftekin eins og framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda heldur fram. Síðustu átján mánuði hefur Sjóvá greitt rúma tuttugu milljarða króna til viðskiptavina sinna.
Keir Starmer leiðtogi breska Verkamannaflokksins sleit flokksþinginu í dag með stormandi ræðu en óvíst hvort hún styrkir hann í sessi.
Sósíalíski vinstriflokkurinn í Noregi er hættur við að mynda vinstristjórn með Verkamannaflokknum og Miðflokknum. Stjórnendur þeirra halda áfram viðræðum um myndun minnihlutastjórnar.
Bréf í útgerðarfélögunum Brim og Síldarvinnslunni hafa hækkað verulega í kjölfar kosninganna um helgina. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að markaðurinn telji mögulega líklegra að við taki stjórn sem geri ekki miklar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Lengri umfjöllun:
Jörð skelfur að nýju við Keili. Kvika hefur ekki komið úr jörðu í tvær vikur á Reykjanesskaga, en jarðskjálftahrina hófst þar um helgina. Kristján Sigurjónsson ræðir við Freystein Sigmundsson jarðeðlisfræðing um atburðarásina þar og stöðuna í Öskju.
Eftirmáli alþingiskosninganna. Krafa um stöðugleika og sömu ríkisstjórn áfram, togast í einhverju á við óánægju fylgismanna Vinstri hreyfingarinnar grænt framboð í samtali ríkisstjórnarflokkanna nú segir Guðmundur Hálfdánarson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Guðmundur ber saman kosningarnar á Íslandi og Þýskalandi og segir að flug popúliskra flokka hafi lækkað. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Guðmund.
Sir Keir Starmer leiðtogi Verkamannaflokksins ávarpaði flokksþingið í dag. Honum þótti takast vel upp í að móta sannfærandi flokksstefnu. En ef ræðan og tíminn sætta ekki brátt stríðandi flokksfylkingar og virkja óánægjuna með stjórn Íhaldsflokksins er leiðtogatími Starmers brátt þrotinn. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners