Pattstaða í deilu ljósmæðra og ríkisins, Bergljót Baldursdóttir ræðir við Áslaugu Valsdóttur formann Ljósmæðrafélagsins.
Bilun í flugumsjónarkerfi. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir sagði frá.
Grunur um manndráp á Gýgjarhóli II
Hundar sem bíta eru í aðstæðum sem þeir ráða ekki við og það er eigendum að kenna segir Björn Ólafsson, hundaatferlisfræðingur. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók saman úr Síðdegisútvarpinu á rás 2.
Umskurðarfrumvarp er mörgum áhyggjuefni að því fram kemur í umsögn utanríkisráðuneytisins.
40 ár síðan fyrsti Dallas-þátturinn var sýndur.Birta Björnsdóttir segir frá og talar við Hinrik Bjarnason, fyrrverandi dagskrárstjóra.
-Skólaforðun er nýtt hugtak yfir gamalt vandamál. Una Björg Bjarnadóttir og Hulda Björk Finnsdóttir, félagsráðgjafar hjá Reykjavíkurborg, segja hegðunina algengari en flestir geri sér grein fyrir og að svo virðist sem þröskuldurinn hér á landi sé of hár þegar kemur að fjarveru barna frá skóla. Þær sitja í starfshópi velferðarsviðs um vandann sem fagfólki í borginni finnst vera að aukast. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við þær.
-Tilvist helvítis er umdeild en það er til segir Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju þó að það sé ekki ákveðinn staður. Í Biblíunni sjálfri fer lítið fyrir sögum af helvíti sem bústað andskotans. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Davíð Þór.
Spegillinn 3. apríl 2018
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir