Spegillinn 3. apríl 2019
Umsjón: Bergljót Baldursdóttir
Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsson
Dráttur hefur orðið á því í dag að kjarasamningar í viðræðum VR, Eflingar, Starfsgreinasambandsins og annarra stéttarfélaga við Samtök atvinnulífsins verði undirritaðir. Búist var við því að samningar yrðu undirritaðir um klukkan þrjú í dag en enn sem komið er hefur ekkert orðið af því. Arnar Páll Hauksson segir frá og talaði við Vilhjálm Birgissson, formann verkalýðsfélagsins á Akranesi
Skúli Mogensen fjárfesti í WOW air fyrir um fjóra milljarða króna allt frá stofnun félagsins árið 2011. Hann segir ljóst að hann muni fá lítið sem ekkert af þessum fjórum milljörðum til baka. Jón Hákon Halldórsson segir frá
Gengi bréfa í Icelandair Group hækkaði um rúm átta prósent í þrjú hundruð tuttugu og tveggja milljóna króna viðskiptum í Kauphöll Íslands í dag.
Panamaskjölin svonefndu hafa gert skattayfirvöldum í 22 löndum víðs vegar um heiminn kleift að innheimta á annað hundrað milljarða króna í sektir og vangoldna skatta vegna fjármuna sem komið hafði verið fyrir í skattaskjólum. Víðs vegar er enn verið að rannsaka undanskotin þannig að upphæðin á eftir að hækka. Ásgeir Tómasson segir frá
Tvö tilvik hafa komið upp hér á landi að undanförnu þar sem kviknað hefur í rafbílum því að venjuleg framlengingarsnúra var notuð til að hlaða þá. Fagstjóri rafmagnsöryggissviðs hjá Mannvirkjastofnun segir ekki öruggt að stinga rafbílum í samband í venjulegar innstungur. Hann hvetur fólk eindregið til að nota frekar hleðslustöð. Dagný Hulda Erlendsdóttir tók saman. Rætt var við Jón Ólafsson í Samfélaginu á Rás 1 í dag.
Lengra efni:
Sigrún Davíðsdóttir fjallar um Brexit
Það er ekki aðeins við Brexit vandann að glíma heldur einnig Brexit angisina. Eftir viðvarandi Brexit-óvissu í Bretlandi undanfarin misseri eru læknar farnir að tala um Brexit-angist. Spurningin er hvernig eigi að taka á angistinn, á að gefa eitthvað við henni, eða kannski er þetta aðeins dæmi um ofgreiningu. En ef angist er dæmi um magnleysi þá er kannski pólitísk þátttaka til ráða til að fá útrás fyrir vanlíðanina.
Lísabet Guðmundsdóttir, fornleifafræðingur segir að þúsundir minjastaða á Íslandi séu að fara í sjóinn mun hraðar en talið var vegna loftslagsbreytinga. Á Norðurlöndunum hafi verið settir upp sjóðir til að fjármagna eftirlit með fornminjastöðum vegna þessarar hættu en ekkert slíkt er til hér á landi. Bergljót Baldursdóttir ræðir við hana
Alvarlegur vandi steðjar að í Marseille, annarri stærstu borg Frakklands. Fjölmargar byggingar eru að hruni komnar o