Spegillinn 3. janúar 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Skólastjórnendur telja óráðlegt að bólusetja börn á skólatíma. Menntamálaráðherra segir að það verði áskorun að halda úti óröskuðu skólahaldi á næstunni og fyrirséð að skólar þurfi að loka. Þrátt fyrir það á að setja skólana að loknu jólafríi á morgun.
Björgunarsveitarmenn á Austurlandi hafa frá því í gærkvöld staðið í ströngu við að forða tjóni og flytja heilbrigðisstarfsfólk til og frá vinnu. Norðvestanstormur gekk yfir austanvert landið í dag en nú er farið að lægja. Það er þó enn byljótt undir Vatnajökli.
Fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir í Spítalabrekkunni á Akureyri valda deilum. Bæjaryfirvöld eru gagnrýnd fyrir að huga hvorki að aurskriðuhættu né menningargildi.
Bandarískt tónlistarforlag hefur keypt réttinn að allri tónlist sem David Bowie lét eftir sig. Kaupverðið er talið nema yfir 32 milljörðum króna.
Lengri umfjöllun:
Starfsdagur var í grunnskólum víðast hvar í dag og skólastjórnendur reyna að ráða fram úr því hvernig skólastarfi verður háttað þegar það hefst á morgun. Fyrirsjáanlega verða erfiðar heimtur á starfsfólki vegna faraldursins; sums staðar er búist við að allt að fimmtungur starfsfólks forfallist vegna smits eða sóttkvíar og eins eru ekki allir foreldrar í rónni með að senda börn sín í skólann. Elínrós Benediktsdóttir skólastjóri Ölduselsskóla í Reykjavík segir þar lagt upp með eins hefðbundið skólastarf og hægt er. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Elínrósu og Arnar Ævarsson framkvæmdastjóra Heimilis og skóla.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, vill að aðilar vinnumarkaðarins nýti næsta ár til þess að hugsa kjaramálin upp á nýtt og setji sér sameiginleg langtímamarkmið um að gera samfélagið betra. Lífskjarasamningar í almennum vinnumarkaði renna út í byrjun nóvember, en á opinberum vinnumarkaði í flestum tilfellum í byrjun mars 2023. Sonja vill nýta tímann fram að því til að hugsa út fyrir boxið. Kristján Sigurjónsson talar við Sonju.