Efnahagsleg og samfélagsleg áhrif loftlagsbreytinga á íslenskt samfélag hafa lítt verið rannsökuð. Í nýrri skýrslu vísindanefndar um loftslagsbreytingar á Íslandi, sem kynnt var í dag, kemur fram að veruleg þörf sé á aðlögun að þeim breytingum sem eru fram undan.
Þingmenn Miðflokksins segja Ísland hafa samið af sér með tollasamningi um landbúnaðarvörur við Evrópusambandið. Landbúnaðarráðherra vísar því á bug.
Framsóknarflokkurinn í Reykjavík vill halda flugvellinum í Vatnsmýri, að ókeypis verði í Strætó og að laun kennara verði hækkuð um hundrað þúsund krónur á mánuði.
Þó að bannað hafi verið frá 15. apríl að aka á nagladekkjum er lögregla ekki byrjuð að sekta ökumenn. Sektin er komin upp í 80 þúsund krónur en ákvæði er í reglugerð um að taka mið af veðuraðstæðum.
Skýrsla um áhrif loftslagsbreytingar á Ísland. Arnar Páll Hauksson ræðir við Halldór Björnsson formann vísindanefndar um loftslagsbreytingar og Snjólaugu Ólafsdóttur ritara nefndarinnar.
Heimsmeistarakeppnin í fótbolta árið 2026 verður annaðhvort haldin í Marokkó eða sameiginlega í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Pálmi Jónasson segir frá.