Spegillinn

Spegillinn 3. maí


Listen Later

Spegillinn 3. maí 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Jökull Karlsson
Staðfest var nú síðdegis að fuglaflensuveira sem greinst hefur hér á landi er af tegundinni H5N1 sem er skætt afbrigði sem geisað hefur í Evrópu. Brigitte Brugge, sérgreinalæknir alifuglasjúkdóma, segir málið grafalvarlegt. Smithætta fyrir alifugla er mikil og brýnt að fuglaeigendur gæti ýtrustu sóttvarna, segir í tilkynningu á vef Matvælastofnunar.
Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir það skref í rétta átt að ráðherra loftslagsmála tali hreint út um að frekari aðgerða sé þörf í málaflokknum. Hann man ekki eftir svo afdráttarlausri afstöðu ráðherra.
Íslenska þjóðin gæti þurft að kljást við verðbólgu næstu 10 árin, segir Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur. Ársverðbólgan mælist nú 7,2 prósent, sú mesta í 12 ár. Hagstjórn peninga- og ríkisfjármála verður vandasöm næstu árin.
Erdogan forseti Tyrklands tilkynnti í dag að stjórnvöld þar ætluðu að byggja íbúðir og nauðsynlega innviði í Sýrlandi í von um að geta hvatt milljón sýrlenskra flóttamanna til þess að flytja aftur heim.
Fjörgamalt fólk situr lasið heima og fær ekki þá aðhlynningu sem það þarfnast. Þetta segir Landssamband eldri borgara og krefst skjótra viðbragða við uppbyggingu nýrra hjúkrunarheimila.
Mikilvægt er að huga sérstaklega að stöðu kvenna og stúlkna á flótta segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra sem er nýsest í stjórn UN Women á Íslandi. Samtökin hrintu úr vör nýrri herferð í gær.
Sjö þúsund manns hafa þegar tekið kosningapróf RÚV sem birtist á vefnum ruv.is í hádeginu í dag. Prófið er sambærilegt þeim sem lagt hefur verið fyrir kjósendur og frambjóðendur í þing- og sveitarstjórnarkosningum áður.
Lengri umfjöllun:
Verðbólga síðustu tólf mánaða mælist nú 7,2 prósent hér á landi. Það er mesta verðbólga í 12 ár. Og útlitið er ekki gott, hvorki til skemmri eða lengri tíma. Íslendingar eru ekki einir um að kljást við verðbólgudrauginn, flest nágrannalönd standa í svipuðum sporum. Stríðið í Úkraínu og Covid faraldurinn eiga stóran þátt í verðbólgunni, en fleira kemur til. Spegillinn fékk Katrínu Ólafsdóttur hagfræðing og dósent við Háskólann í Reykjavík til þess að greina stöðuna. Kristján Sigurjónsson ræðir við hana.
Kolefnisbinding vegna skógræktar hefur sautjánfaldast á síðustu þrjátíu árum. Þrátt fyrir það er skógrækt enn mjög umfangslítil á Íslandi miðað við nágrannalönd. Flatarmál ræktaðra skóga hefur aukist um 38 þúsund hektara frá árinu 1990 og flatarmál náttúrulegs birkiskógar hefur aukist um 11 þúsund hektara. Þessi aukn
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

21 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

19 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

32 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

42 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners