Spegillinn 3. Nóvember
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
Bandaríkjamenn ganga til kosninga í dag og kjósa forseta landsins. Valið stendur á milli Donalds Trumps sitjandi forseta og frambjóðanda repúblikana og Joes Bidens frambjóðanda demókrata. Ingólfur Bjarni Sigfússon talar frá Washington
Engar vísbendingar hafi fundist um að ungur maður sem skaut fjóra til bana og særði fjórtán í hryðjuverkaárás í Vínarborg í gærkvöld hafi átt sér vitorðsmenn.
Vonskuveðri er spáð á sunnan- og vestanverðu landinu í kvöld og nótt - og á Norðurlandi á morgun. Hlýindi, mikil rigning og leysing fylgir sunnan- og vestanstormi sem gengur yfir landið.
Margir sóttu um hlutdeildarlán hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í gær þegar opnað var fyrir umsóknir. Enn er beðið eftir reglugerð.
Og Ari Eldjárn uppistandari verður með grín og gaman á streymisveitunni Netflix á næstunni.
Lengri umfjallanir:
Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Kristján Sigurjónsson ræðir við Ragnheiði Elínu Árnadóttur fyrrverandi þingmann og ráðherra og núverandi stjórnarmann í amerísk íslenska viðskiptaráðinu um kosningarnar, kosningabaráttuna og hvað taki við eftir kosningarnar.
SÁÁ, samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, ætla að draga sig út úr Íslandsspilum og hætta þar með rekstri spilakassa. Framkvæmdastjórn SÁÁ bókaði í síðustu viku að hún væri sammála því að samtökin hætti þátttöku í Íslandsspilum og valin yrði útgönguleið sem verði þjónustu við fólk með spilafíkn. Einar Hermannsson formaður SÁ segir þarna ekki vera hlut til að selja, Íslandsspil sé ekki venjulegt fyrirtæki heldur sameignarfélag sem sé úthlutað leyfi til að reka spilakassana. Því þurfi sennilega aðkomu ráðherra og reglugerðarbreytingu þegar samtökin hverfa úr félaginu og afþakka þessa peninga. Framkvæmdastjóri Rauða krossins hefur sagt að hann ætli ekki að hætta rekstri spilakassa. Þór Þorsteinsson formaður Landsbjargar segir að það hafi lengi verið rætt innan félagsins hvort spilakassarnir séu fjáröflun sem standa eigi að. Eigendur Íslandsspila hafi í gegnum árin margoft reifað við dómsmálaráðherra hvernig bregðast megi við spilafíkn og spilavanda heildstætt, til dæmis með því að taka upp spilakort en það hafi ekki borið árangur. Vandinn sé miklu stærri en spilakassar Íslandsspila, Happdrætti háskólans reki líka slíka kassa en vandinn sé ekki síst á netinu, hvorki ríkið né íslensk félagasamtök fái nokkuð fé þaðan. Landsbjörg ætli ekki að hætta rekstri kassanna. Þeir hafa skilað þeim um fjórðungi tekna eða um 180 milljónum króna í fyrra. Anna