Spegillinn

Spegillinn 3. september 2021


Listen Later

Persónuvernd gerir alvarlegar athugasemdir við rangfærslur í skýrslu sjávarútvegsráðherra um eignarhald útgerðafélaga. Helga Þórisdóttir, fForstjóri Persónuverndar segir persónuverndarlög notuð sem skálkaskjól til að leyna gögnum. Hildur Margrét Jóhannsdóttir tók saman.
Bardagar hafa staðið undanfarna daga í Pansjír-dal norðan höfuðborgar Afganistans. Rótgróin andstaða er við talibana í dalnum. Bogi Ágústsson segir frá. Heyrist í Samir Abu Eid, fréttamanni SVT og hermanni sem berst gegn talibönum.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra segist ekki vita til þess að nokkur hafi reynt að villa á sér heimildir með stafrænum ökuskírteinum í utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Skannar verða á öllum kjörstöðum segir Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands. Dagný Hulda Erlendsdóttir tók saman.
Slysavarnafélagið Landsbjörg fær þrjú ný skip í flotann á næstu tveimur árum. Meðalaldur skipa björgunarsveitanna er um 35 ár og eru þau án allra helstu grunnþægind.Örn Smárason verkefnisstjóri sjóbjörgunar hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg segir óspennandi til lengdar að fara í útkall eftir útkall á illa búnum skipum. Sunna Valgerðardóttir ræddi við hann.
Vegglistaverkið Flatus Lifir, við Esjurætur, tekur stakkaskiptum á næstu dögum. Listakonan, Edda Karólína Ævarsdóttir, segist ætla að halda textanum en hafa vegginn litríkari. Ólöf Rún Erlendsdóttir talaði við hana.
-------------
Í fyrra leituðu 24 til samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs eftir að hann tók til starfa um vorið. Í ár hafa þegar borist 40 mál og viðbúið að þeim fjölgi í ljósi umræðu um íþróttahreyfinguna, segir Sigurbjörg Sigurpálsdóttir sem sinnt hefur þessu starfi í rúmt ár. Til ráðgjafans geta allir í skipulögðu íþrótta og æskulýðsstarfi leitað finnist þeim á sér brotið án þess að óttast afleiðingar.
Sigur talíbana í Afganistan gæti fyllt íslamska öfgamenn víða eldmóði og aukið líkur á hryðjuverkum, þótt sérfræðingar búist ekki við ódæðum á við þau sem
framin voru í Bandaríkjunum fyrir bráðum 20 árum. Ragnhildur Thorlacius segir frá.
Extinction Rebellion eru orðin alþjóðleg samtök sem hafa andæft undanfarið í London, upptaktur fyrir umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í nóvember. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners