Spegillinn 30. maí 2018
Meirihlutar í Reykjavík og Hafnarfirði eru í óða önn að taka á sig mynd. Samfylkingin, Vinstri Græn, Píratar og Viðreisn hafa átt í óformlegum viðræðum um myndun meirihluta í borginni síðustu daga.
Ellefu manns hafa látist í níu slysum í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi það sem af er ári.
Ný farþegaspá Isavia, sem kynnt var á Reykjavík Hilton Nordica í morgun, gerir ráð fyrir að færri erlendir ferðamenn komi til Íslands á þessu ári en reiknað hafði verið með.
Stjórnvöld vinna að því að innleiða núvitund í skólum og heilsugæslu.
Rússneskur blaðamaður, Arkady Babchenko, sem sagt var að hefði verið myrtur í Kænugarði í gær, dúkkaði upp á blaðamannafundi lögreglu í borginni í dag.
Á hjúkrunarheimili á Dalvík er hverjum íbúa sinnt í rúmar þrjár klukkustundir á dag að meðaltali. Í Grindavík eru þær tæplega sex. Sums staðar úir og grúir af fagmenntuðu fólki. Annars staðar er skortur. Aðbúnaður íbúa er líka misjafn. Ríkið gerir ekki skýrar kröfur um lágmarksmönnun á hjúkrunarheimilum. Arnhildur Hálfdánardóttir.
Milljarðamæringurinn Roman Abramovich hefur fengið ríkisborgararétt í Ísrael en hann er einn ríkasti maður heims og langríkastur í Ísrael. Honum hefur gengið erfiðlega að fá framlengda vegabréfsáritun í Bretlandi og er það tengt deilum Rússa og Breta. Sumir segja að hann sé að missa áhugann á fótboltaliðinu Chelsea sem hann hefur dælt peningum í á umliðnum árum. Pálmi Jónasson.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Tæknimaður: Grétar Ævarsson.