Samkomulag er milli Íslands og Bretlands að íslenskir ríkisborgarar sem búa í Bretlandi og breskir ríkisborgarar sem búa á Íslandi haldi öllum sínum réttindum eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Þetta var handsalað á fundi Katrínar Jakobsdóttur með Theresu May forsætisráðherra Bretlands í Ósló í dag.
Tugþúsundir fjölskyldna eru fastar á leigumarkaði,- aðeins átta prósent af þeim sem leigja, vilja leigja. Húsnæðismálaráðherra telur að hægt sé að bæta stöðuna á húsnæðismarkaði með því að fylgja fordæmi Finna.
Landlæknir er fylgjandi því að gefa konum kost á að rjúfa meðgöngu fram í 22. viku í stað 16. eins og nú er.
Hjúkrunarfræðingur hefur viðurkennt að hafa myrt 100 sjúklinga sem voru í hans umsjá á tveimur sjúkrahúsum í Þýskalandi.
Persónuvernd telur að Barnaverndarstofa hafi brotið lög þegar stofnunin afhenti RÚV og Stundinni gögn um samskipti við velferðarráðuneytið.
Leigjendur hafa það að jafnaði verra en þeir sem eiga húsnæði. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íbúðalánasjóðs og velferðarráðuneytisins um stöðu og þróun húsnæðismála. Húsnæðismálaráðherra telur brýnast að uppræta íbúðaskort með því að byggja húsnæði í stórum stíl. Hann horfir til Finnlands og vill að stjórnvöld og sveitarfélögin stígi fastar inn í húsnæðismarkaðinn. Formaður félags leigjenda vill leiguþak. Arnhildur Hálfdánardótir.
Miklar líkur eru á að ný ríkisstjórn verði mynduð í Noregi og að Erna Solberg forsætisráðherra verði að taka fjórða flokkinn inn í stjórn sína. Kristilegi þjóðarflokkurinn vill ráðherrastóla í stað þess að verja stjórnina bara falli. Að öðrum kosti verði mynduð ríkisstjórn til vinstri með Verkamannaflokknum. Gísli Kristjánsson.
Eins og heyra mátti í breska þinginu í gær þegar Philip Hammond fjármálaráðherra lagði fram fjárlagafrumvarpið markast átökin í breskum stjórnmálum enn af átökum um niðurskurð og velferðarkerfið. En stóri óvissuþátturinn, sem fjármálaráðherrann nefndi þó varla, er Brexit. Sigrún Davíðsdóttir.