Spegillinn

Spegillinn 30. september 2021


Listen Later

Heldur hefur dregið úr skjálftavirkni við Keili í dag. Gervihnattamyndir af svæðinu sýna ekkert ris, og því enn óvíst hvort jarðhræringar eru vegna kvikuhreyfinga.
Viðræðum um ríkisstjórnarsamstarf miðar vel hjá formönnum stjórnarflokkanna þriggja en allt er þar á óformlegum nótum enn. Haukur Holm sagði frá.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir niðurstöðu Alþingiskosninganna vonbrigði. Þó sé hægt að ná miklum árangri með þriggja manna þingflokki.
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, hefur óskað eftir því að fá að gefa skýrslu hjá lögreglu vegna ásakana á samfélagsmiðlum um að hann tengist ofbelidsmáli í Kaupmannahöfn fyrir ellefu árum.
Fjórtán ný covid smit voru staðfest á Akureyri í dag flest hjá grunnskólabörnum.
Fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, hefur óskað eftir því að fá að gefa skýrslu hjá lögreglu vegna ásakana á samfélagsmiðlum um að hann tengist ofbelidsmáli í Kaupmannahöfn fyrir ellefu árum
Covid-19 smit greindust bæði á kosningavöku Pírata og Framsóknarmanna um helgina en ekki er enn ljóst hvort útbreiðsla hafi verið mikil. Yfir fimm þúsund hafa greinst með sjúkdóminn frá fyrsta júlí, en af þeim hafa 110 þurft að leggjast inn á sjúkrahús. Þórólfur Guðnason segir að þetta sýni mikilvægi þess að halda í sóttvarnaaðgerðir, þó önnur lönd séu farin að aflétta. Hjördís Rut Sigurjónsdóttir ræddi við Þórólf.
Ítalir eru furðu lostnir yfir þungum dómi yfir bæjarstjóra í smábæ sem skaut skjólshúsi yfir ólöglega innflytjendur til að efla atvinnulífið heima fyrir. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Brim áformar að byggja nýja stóra uppsjávarverksmiðju á Vopnafirði. Sú gamla er orðin of lítil og skipin svo lengi að landa að það tefur fyrir veiðum. Rúnar Snær Reynisson sagði frá.
---
Á meðan skjálftahrina á borð við þá sem nú er við Keili er í gangi getur alltaf dregið til tíðinda segir Kristín Jónsdóttir hópstjóri Náttúruvár á Veðurstofu Íslands. Búast má við skjálftum sem fólk finnur fyrir í kvöld og nótt. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Kristínu Jónsdóttur.
Aukin úrkomuákefð og þéttari byggð valda því að álagið á fráveitukerfi borga og bæja eykst. Nokkrir möguleikar eru í stöðunni til að bregðast við þessu, að fjölga grænum svæðum og blettum. Þetta kallast blágrænar ofanvatnslausnir, að uppfæra fráveitukerfi og beita stafrænni tækni. Fjóla Jóhannesdóttir er sérfræðingur í fráveitum hjá Veitum. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hana.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: I
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners