Mistök urðu þegar barnaverndaryfirvöldum var ekki tilkynnt um kæru á hendur starfsmanni þeirra, fyrir gróft kynferðisofbeldi gegn börnum, fyrr en hálfu ári eftir að hún var lögð fram. Þetta segir lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu.
Staðan á íbúðamarkaði er mjög alvarleg að mati framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Aðeins um þriðjungur þeirra íbúða sem þörf er á næstu tvö ár er í byggingu.
Bandaríkjastjórn birti í dag lista með nöfnum rúmlega 200 Rússa, sem verður refsað ef í ljós kemur að Rússar hafi haft áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.
Hreppsnefnd Árneshrepps samþykkti í dag tillögur að breytingum á aðal- og deiliskipulagi sveitarfélagsins, en breytingarnar eru vegna undirbúnings Hvalárvirkjunar.
Tatjana Latinovic, formaður innflytjendaráðs, segir annað hvort litið á innflytjendur sem vinnuafl eða vandamál og að frekar sé hugað að stefnumótun þegar hið síðarnefnda eigi við. Tíð stjórnarskipti hafa tafið framgang framkvæmdaáætlunar um málefni innflytjenda sem gildir fyrir árin 2016 til 2019. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Tatjönu og Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra.
Bresk leyniskýrsla embættismanna um kostnaðinn við úrgöngu Breta úr ESB, sýnir að kostnaðurinn er minni hagvöxtur um ókomin ár. Þegar David Davis Brexit-ráðherra Breta sat fyrir svörum í þingnefnd í vetur sagði hann stjórnina hafa gert nákvæma úttekt á kostnaði úrgöngu. Þegar þingmenn kröfðust þess að sjá úttektina kom í ljós að hún var mjög almenns eðlis. Nú hefur Brexit-skýrslu breskra embættismanna verið lekið. Niðurstaðan er lægri þjóðartekjur næstu fimmtán árin en væri við óbreytt ástand. Skýrslan er olía á bál Brexit-umræðna. Sigrún Davíðsdóttir í Lundúnum.
Boðskapur dagsins í Noregi er að konungsríkinu stafi mest ógn af njósnum úr austrinu: Það er ólöglegri starfsemi leyniþjónutu Rússa, tilraunum til að hafa áhrif á skoðanir fólk og jafnvel úrslit kosninga. Þetta mat norsku leyniþjónustunnar, PST, var kynnt í Osló í dag og á sama tíma sat Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fund með norska utanríkisr